Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 01.01.1941, Page 11

Læknablaðið - 01.01.1941, Page 11
LÆKNABLAÐIÐ GEFIÐ ÚT AF LÆKNAFÉLAGI REYKJAVÍKUR RITSTJÓRN: JÓHANN SÆMUNDSSON, JÓN STEFFENSEN, JÚLÍUS SIGURJÓNSSON. 27. árg. Reykjavík 1941. 1. tbl. ' Verkir í fótum. Eftir Kristjón Hanncsson, lækni. Eg hefi leyft mér a8 kalla þessa grein „Verkir í fótum“. Hér er ekki að ræða um neinn vísindafyrirlest- ur, heldur mun ég aðeins drepa lauslega á ýms atriði, sem Iúta að sjúkdómseinkenninu „verkir í fót- um“, skoðað frá sjónarmiði liins practiserandi læknis. — Styðst ég aðallega við það, sem ég sjálfur hefi séð og við aðgerðir, sem ég hefi verið viðstaddur í þessum efn- um, bæði á Ortopæd. Hosjiital i Aarhus og á Folkekuranstalten v. Hald í Danmörku. Einkenninu „verkir í fótum" má skifta þannig: 1. Verkir í fótuni eða fæti, sem orsakast vegna meðfædds sjúk- dóms, áunnins eða hvorttveggja, og er í sjálfum fætinum (reg. ped.). 2. Verkir í fótum eða fæti, sem orsakast af ásköpuðum eða að- fengnum sjúkdómum.eða heoru- tveggja i öðrum líkamshlutum, og þá sérstaklega hundnir við extremitates inferiores, eða eru allsherjar sjúkdómar, eins og t. d. offita, arteriosclerosis uni- versalis o. fl. sjúkdómar. 3. Þá geta verið og eru oft verkir í extrem. inferiores og jafnvel i haki, vegna sjúkdóma i reg. pedis. Ber að hafa slikt : huga, þegar sjúklingar kvarta um verki í baki. — En verkir í baki teljast ekki með einkenninu „verkir i fótum“, og verður það atriði þvi ekki rætt nánar hér. Þeir sjúkdómar, sem meðal ann- ars geta verið orsök til verkja í fól- uin, eru helst þessir: 1) Pes equino-varus. 2) Pes metatarso-varus. 3) Pes pla’nus. Má nefna sem undirflokk hans pes plano- valgus, plano-transversus og Mortons-s j úkdóm. 4) Pes transversus. 5) Hallux valgus. 6) Hallux rigidus. 7) Pes plano-dolorans, þ. e. con- tract flatur fótur. • 8) Coalitio calcaneo navicularis. 9) Hamartá. 10) Os tibialis externa. 11) Mb. Köhler I. 12) Mb. Köhler II. 13) Mb. Haglundi. 14) Calcaneusspori. 15) Bursitis calcanei. 16) Pes excavatus (holfótur). 17) Ungvis incarnatus. 18) Beinbrot, liðhlaup, sár og ígerðir í reg. pedis. Aðrir sjúkdómar, er geta vald- ið verkjum í fótum, eru:

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.