Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 01.03.1941, Blaðsíða 17

Læknablaðið - 01.03.1941, Blaðsíða 17
LÆKNABLAÐIÐ 27 fara hæmaturia orsaka heldur ekki nephritis eöa nephrosis, nema ef vera kynni i einstaka sjaldgæf- um tilfellum. Einnig mun sjaldgæft aö kviöslit orsakist af slysum eöa áreynslu. Kviöslit eru oft talin kbma af áreynslu, til dæmis miklu á- taki. Þessi skoöun virðist ekki ó- réttmæt, en er samt ekki rétt. Þegar kviðslit finnst fyrst eftir á- reynslu, þ. e. a. s. aukningu á þrýstingi í kviðarholi, er þaö venjulega af því, að þá er fyrst tekið eftir kviöslitinu, þar fyrir þarf kviöslitiö ekki að hafa or- sakast af áreynslunni. Venjulega myndast kviöslit á þeim stööum líkamans, þar sem meðfæddar veilur eru í vefjunum, á svipaðan hátt og t. d. æðahnútar myndast. Orsakasamband milli átaks og kviðslits er ekki hægt aö viöur- kenna nema bráð (akut) einkenni séu fyrir hendi. 5) Slys og taugasjúkdómar. Viðamesti þáttur efnis þessa eru taugasjúkdómarnir, og þá sérstaklega þeir, sem kallaðir eru starfrænir — „funktionell". Eftir áratuga skriffinnsku eru menn loks komnir á eina skoðun í öllum löndum á þessum sjúk- dómum. Fyrir rúmum 60 árum var í Englandi fyrst lýst eins konar taugaveiklun, sem kom fyrir eftir járnbrautaslys, og töldu menn að um afleiðingar mænuhristings væri að ræða, og nefndu sjúkdóminn þess vegna „railway spine“. Helztu einkenni eru m. a. truflun á hreyf- ingum og húð- og vöðvaskyni, titringur, órói, hjartsláttur, svefn- leysi, óeðlileg viðkvæmni 0. fl. At- huganir á þessum sjúkdómi leiddu til kenningarinnar um hina svo nefndu „neurosis traumatica". Langur tími leið þar til menn full- vissuðust um, að hjá þessum sjúk- lingum fundust ekki sjúklegar vefjabreytingar, heldur var um sálarlega eða „funktionell“ veiklun að ræða. Það styður þessa skoðun, að neurosis traumatica kemur nær eingöngu fyrir hjá slysatryggðu fólki, ennfremur það, að einkenn- in, sem oftast eru mjög svæsin, hverfa venjulega fljótt eftir að greiðsla á slysabótum hefur farið fram í eitt skipti fyrir öll. Hér er þó ekki, og það skal skýrt tekið fram, um vísvitandi blekkingu að ræða, heldur eru þetta að einhverju eða öllu leyti skorðaðir hugarburðir. Neurosis traumatica kemur nærri aldrei fyrir hjá stórslösuðu fólki, en aðallega þeim, sem lítið eða ekki hafa meiðst og mælir það á móti þvi, að hún orsakist aí slysalosti (shock). Sú mikla reynsla, sem fékkst eftir stríðið, skýrði þetta ágreiningsatriði að fullu. Svissneskur læknir benti fyrsf á, að taugaveiklun kom ekki fram hjá þeim særðu her- mönnum, sem voru í haldi í Sviss. Hann þakkaði þetta því, að stríð- inu var svo að segja lokið hvað þessa hermenn snerti. Þeir þurftu ekki að óttast, að þeir særðust aftur eftir að þeim var batnað. Eftir stríðslokin batnaði líka ná- lægt öllum, sem haldnir voru stríðstaugaveiklun, nema þeim, er áttu von á slysabótum. Maður verður nefnilega að hafa það stöð- ugt i huga, að heilbrigður maður nær sér oftast algerlega eftir sál- arleg áhrif af slysi, jafnvel þótt um stórslys sé að ræða. Geri hann það ekki, má nærri altaf gera ráð fyrir, að taugakerfi hans hafi ekki verið heilbrigt fyrir. Ein- kenni taugaveiklunar eftir meiðsli er því yfirleitt ekki hægt að telja afleiðingar þess, og er þess konar

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.