Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 15.11.1943, Page 8

Læknablaðið - 15.11.1943, Page 8
66 LÆKNABLAÐIÐ Auk þess fengust upplýsingar um 64 börn í Reykjavik í sambandi við skýrslusöfnun um kíghósta- bólusetningu (sjá 3. tbl. Lbl. 1943) og ennfremur eru taldir 7 sem ég dældi sjálfur serum i. Frá Akureyri hefi ég fengiö upp- lýsingar um 112 manns, sem ser- um var dælt í og hefir frk. Asta Björnsdóttir, hjúkrunarkona, góö- fúslega safnað þessum upplýsing- um. Þar sá héraöslæknirinn um serumgjafir allra og skráöi hjá sér, svo að unnt var að sat'na nauösynlegum skýrslum. Þaö var af þessurn ástæðum meira samræmi í skömmtuninni en hér í Rvik, þar sem skömmtunin var í höndum margra og því meiri munur á. sem eölilegt er. Serumskammtur. \iö ráölöggö- um aö gefa misstóra skammta eft- ir aldri, og miöa viö að börnin fengju 1 ccm fyrir hvert aldurs- ár, en þó aldrei minna en 2 ccm. Þar sem serum var látiö út i 5 ccm og 20 ccm skömmtum hafa læknar i Rvík iðulega notað 5 cc i ungbörn, þar sem ekki var nema eitt barn á heimilinu, en annars mun þeiri reglu nokkurnveginn hafa veriö fylgt, aö nota t ccm fyrir hvert aldursár, upp í 20 ccm fyrir fulloröiö fólk. Árangur. Alls hafa fengist upp- lýsingar um 203, sem fengið liafa mislingaserum. Af þeim voru 112 á Akureyri, en 91 í Reykjavík. Al' þessum 203 veiktust 61 eöa 30% — ekki 142 eða 70% Nánari upplýsingar eru fyrir hendi um 45 af þeim 61 sem veikt ust. Af 45 veiktust: 16 innan 10 daga frá dælingu, 15 frá 10—30 dögum eftir dælingu 3 milli 30.. og 50. dags eftir dæl. 11 eftir að 50 dagar voru liðnir frá dælingu. Þeir sem veiktust innan 10 daga frá dælingu liafa allir veriö smit- aöir þegar dælt var í þá. Nokkrir veiktust strax daginn eftir dæl- inguna og hefir serum sýnilega ekki getað komiö í veg fyrir að veikin brytist út, þegar svo seint er dælt, enda ekki viö aö liúast. Talið liefir verið, að serum gæti varið fyrir mislingum, ef því er dælt fyrstu daga meðgöngutimans. cg sennilegt aö -það geti komið aö haldi allt að 5 dögum eftir smitun. Með þvi að telja sér í flokki þá sem veikjast innan 10 daga frá dælingu, er gerö tilraun til aö tina úr þá, sem smitaðir hafa ver- ið við dælinguna og veikin búin aö ná þaö föstum tökum, aö hún varð ekki stöðvuö. En þótt veikin veröi ekki stöövuð getur enginn efi á þvi leikið, að ef serum er dælt á meðgöngutímanum getur þaö tafið fyrir aö veikin brjótist út. þótt það megni ekki aö koma í veg fyrir hana. Ljóst dæmi þess var maður, sem kom til mín 20/4 og bað mig að gefa sér serum, af því að hann þyrfti aö fara noröur í land og mætti ekki veikjast á leiö- inni, en heföi fyrir fimm dögum verið meö manni, sem nú væri búinn að fá mislingaútbrot. Eftir að hafa dælt 20 ccm i hann sagði ég honum aö koma til mín dag- inn áöur en' hann færi norður. Hann kom á niunda degi frá því að ég dældi í hann (14 dögum eft- ir infektion) og var þá alheill, en seinna skrifaði hann mér og sagð- ist hafa fengið mjög létta mislinga 14 dögum eftir dælinguna (19 dögum eftir infektion) og verið lasin með lítinn hita, en greinileg útbrot í tvo daga. Vafalaust má því teljast, aö töluvert af þeim, sem veikjast 10 —30 dögum eftir dælingu hafi ver- iö smitaðir er i þá var dælt, en að

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.