Læknablaðið - 01.05.1950, Side 20
30
LÆKNABLAf) I !>
Taussig heldur því fram, að
öll líkindi séu til þess, að 90%
af hinum opereruðu börnum
fái langvarandi bata, og War-
burg segir að reynsla þeirra í
Ríkisspítalanum í Kaupm.-
höfn sé alveg í samræmi við
það. '
3) Eisenmengers syndrom
eða komplex er vert að geta
hér um til aðgreiningar. Eisen-
menger lýsti þessum meðfæddu
hjarta-vansköpunum 1897 og
er þetta stundum kallað Fall-
ot’s tetralogi, Eisenmengers
form. Syndromið líkist Fallot's
tetralogi í því, að aorta er
dextroponeruð og ríður klof-
vega yfir septum ventriculor-
um og einnig finnst gat, sem er.
hátt í septum, svarandi til þess
staðar, er aorta festist. Aftur á
móti er engin pulmonalstenos-
is, og er það grundvallaratriðið
í aðgreiningunni. Við Eisen-
mengers syndrom er ,,tardiv“
cyanosis, sem kemur venjulega
fyrst fram á unglingsárum,og
sjúklingar þessir ná hærri aldri
en þeir, sem hafa Fallot’s te-
tralogi, og eins kemur fyrir
blóðhósti, sem ekki skeður hjá
þeim síðarnefndu.Steth.cordis:
oft heyrist gróft systol óhljóð
líkt og við Fallot’s tetralogi.
Ekg sýnir engar sérlegar breyt-
ingar, því að oftlega er hyper-
trofi á báðum afturhólfum.
Á röntgenmynd af cor ber að
taka eftir, að pulmonal-boginn
er eðlilegur í sumum tilfellum,
en hjartað stækkað til beggja
hliða, í öðrum er pulmonal-
boginn mjög stækkaður án
þess að stækkun á sjálfu cor sé
sjáanleg.
Með angiocardiografi og
mælingu á þrýsting í arteria
pulmonalis er hægt að ákveða
greininguna með vissu. Auð-
sætt er, að ekki er ástæða til
Blalock-Taussig aðgerðar við
Eisenmengers Syndrom, þar
sem lungna-hringrásin er auk-
in í stað minnkuð við Fallot-s
tetralogi.
Ég ætla í þessu sambandi
rétt að minnast á Maladie de
Roger, en það nafn er bundið
við þá sjúklinga sem eingöngu
hafa missmíði eða gat í septum
interventriculare, og er það
einn tíðasti meðfæddi hjarta-
sjúkdómurinn. Venjulega eru
sjúkl. þessir hressir og eðlileg
röntgenmynd af hjarta. Sé
gatið lítið heyrist oft kröftugt
systolu-óhljóð sterkast í 3.
og 4. vinstra rifjabili rétt við
sternum. Hér er angiocardio-
grafi mjög mikilsverð fyrir
diagnosis.
4) Coarctatio aortae eða
stenosis isthmi aortae. Af þess-
um meðfædda hjartasjúkdómi
finnast tvö form, annað í börn-
um, hitt í fullorðnum. — í
börnum eru þrengslin „proxi-
malt“ við þann stað á aorta,
sem ductus arteriosus hefir
upptök sín. Börn þessi deyja
venjulega stuttu eftir fæðingu,