Læknablaðið - 01.09.1950, Síða 5
LÆKNABLAÐIÐ
GEFIÐ ÚT AF LÆKNAFÉLAGI REYKJAVÍKUR
Aðalritstjóri: ÓLAFUR GEIRSSON. Meðritstjórar: BJARNI
IÍONRÁÐSSON og JÚLÍUS SIGURJÓNSSON.
35. árg. Reykjavík 1951 7. tbl. -—.
COARCTATIO AORTAE.
(Stenoiis isthmi aortae).
Erindi flutt a fundi
Góðir kollegar.
Eins og ykkur mun kunnugt,
hefir skurðaðgerðum á hjarta
og æðum stórum fleygt fram, á
síðasta áratug. Einkum hefir
mönnum orðið vel ágengt í að-
gerðum vegna meðfæddra
hjartasjúkdóma. Vil ég þar til
neína, að 1938 batt Gross fyrst-
ur manna fyrir ductus arteri-
osus persistens. Árið 1943
framkvæmdi Blalock 1 fyrsta
skipti aðgerð við Fallots tetra-
logi, og í október 1944 birti
Crafoord í Stokkhólmi, og
Gross 1 Ameríku í byrjun árs
1945, þháðir hvor öðrum, ár-
angur af resectio á aorta í
sjúklingum með coartatio a-
ortae, eða öðru nafni stenosis
isthmi aortae.
Ástæðan til þess, að ég tek
efni þetta til meðferðar er sú,
að ég hefi fundið tvö tilfelli af
L. R. í marz 1950
f)amúe(iion.
þessum æðagalla meðal þeirra
sjúklinga, sem til mín hafa
leitað. Einnig, og ekki veiga-
minni, er sú ástæða, að hver
og einn kollega getur greint
þennan sjúkdóm, ef hann hef-
ir hann í huga, en hans ber
sérstaklega að gæta hjá ungu
fólki með hypertensio arteri-
alis.
Mér er tjáð, að þessi van-
sköpun hafi ekki fundizt við
krufningar hér á landi. War-
burg telur að hún finnist í
V2% allra krufninga, Ekki er
mér kunnugt um, að hún hafi
verið greind in vivo fyrr hér
á landi.
Æðagalli þessi er læknum
gamalkunnur og t. d. getur
Morgagnus hans (1761), Wad-
stein (1897) gefur í sænskri
doktorsritgerð gott yfirlit yfir
rit Norðurlanda um þetta efni,
og Warburg (1943) gefur yfir-