Læknablaðið - 01.09.1950, Side 7
LÆKNABLAÐIÐ
99
herpist aorta-veggurinn einnig
saman, svarandi til þess svæðis,
sem ductus-vefurinn hefur
breitt sig um 1 aorta-veggn-
um. Eins og áSur er getið, eru
þrengslin venjulega kringum
upptök ductus arteriosus við
coarctatio aortae af fullorð-
inna gerðinnin Það, sem mér
finnst afsanna hvað mest þessa
kenningu, er, að í þeim ritum,
sem ég hefi náð til, er að finna
12 tilfelli með coarctatio ann-
aðhvort í aorta thoracalis eða
í aorta abdominalis. Er ólík-
legt, að vefur frá ductus arteri-
osus teygi sig alla leið þangað
niður.
Aldur sjúklinga og
árangur aðgerða.
Abbott fann 200 tilfelli af
coarctatio aortae meðal þeirra
1000 krufninga, sem hún birti
skýrslu um, Meðalaldur þeirra
við dauða var 36 ár.
Reifenstein, Levine og Gross
.(1947) fundu meðalaldurinn
35 ár á 104 krufningum með
coarctatio aortae, 61% af þess-
um 104 sjúklingum dóu fyrir
eða á 40. æviári. Af 200 sjúki-
ingum Abbotts dóu 74(% fyr-
ir eða á 40. aldursári. Aftur á
móti hefi ég séð getið í lækna-
ritum sjúklings 72 ára, og ann-
ars 92 ára, með þennan æða-
galla.
Það er því auðséö, að horfur
eru slæmar fyrir fjöldann af
þessum sjúklingum, og mest,
er um vert, að greina sjúkdóm-
inn á sem yngstum aldri, áður
en koma miklar sclerotiskar
breytingar í aorta og aukafar-
vegi æðakerfisins. Sem dæmi
um, hve oft æöagalli þessi fer
framhjá læknum, má geta
þess, að hjá Abbott (1928) var
sjúkdómsgreiningin aðeins til-
greind í 14% tilfellanna, og
hjá Reifenstein, Levine og
Gross (1947) aftur á móti 1
40%, sem mun vera óvenju
hátt,
Allir eru sammála um það,
að beztur árangur náist af
skurðaðgerðunum, ef sjúkling-
arnir eru innan tvítugs. Hins
vegar hafa amerísku læknarnir
stundum skorið sjúklinga milli
þrítugs og fertugs, og sumarið
1948 gerði Blalock skurðaðgerð
á 41 árs gömlum manni með
mjög háan blóðþrýsting, præ-
cordial verki og höfuðverk.
Aðgerðin tókst vel. Gross telur
bezta aldurinn til aðgerða
vera milli 6 og 20 ára. Eins og
venjulegt er, við nýjar aðgerð-
ir, hefir dánartalan farið ört
lækkandi. Árið 1948 birti Gross
árangur aðgerða á 60 sjúkling-
um. Dánartalan var 11%. Bla-
lock (1948) hafði opererað 26
sjúklinga, Þrír höfðu dáið (um
11%). Jones (1948) 13 sjúkl-
inga, af þeim voru 2 dánir.
Shapiro (júní 1948) taldist
dánartalan vera 16% meðal
128 skurðsjúklinga, sem skýrsl-
ur höfðu birzt um„