Læknablaðið - 01.09.1950, Síða 8
100
LÆKNABLAÐIÍ)
Við krufningar sínar fundu
Reifenstein, Levine og Gross,
að lA hluti þessara sjúklinga
höfðu orðið langlífir. Höfðu
sumir engin en aðrir lítil ein-
kenni um sjúkdóm sinn. Það
er því ástæða til að vera vel á
verði, og greina vanskapnað
þennan í sjúklingunum sem
yngstum„ Segja sumir (Shapiro
1948), að öll líkindi séu til þess,
að dánartalan fari niður í 1%,
eins og hún er nú við aðgerð á
ductus arteriosus persistens,
ef til aðgerðarinnar séu valdir
sjúklingar á aldrinum 10 til
20 ára, Ekki má þó gleyma
því, að hér er um að ræða
mjög erfiða aðgerð, bæði fyrir
sjúkling og lækni.
Sjúkdómsgreining.
Kvilli þessi er 4—5 sinnum
tíðari í körlum en konum. —
Abbott fann t. d. þennan galla
í 4 körlum móti einni konu,
Ástæðan til þessa er ókunn, en
bent hefir verið á, að drengir
með coarctatio aortea séu
bráðþroska, en þessi vansköp-
un finnist ekki í eðlilega þrosk-
uðum stúlkum, heldur þeim,
sem hafa hormon-truflanir, og
þá sérlega vanþroska ovaria.
Af almennum einkennum
má geta, að sumir kvarta um
svita á höfði, hálsi og hand-
leggjum, sumir um höfuðverk
og hitabylgjur til höfuðs. Aft-
ur á móti er dofi og kuldi á fót-
um tíð einkenni, og sár gróa
þar illa, sökum lélegrar blóð-
rásar.
AÖ útliti eru sjúklingar þess-
ir eðlilegir, og venjan er, að
drengir og karlmenn eru vel
þroskaðir, nema um fleiri en
þennan meðfædda hjartagalla
sé að ræða. Cyanosis og
klumpsneglur sjást ekki, enda
fyrirfinnst ekki nein sú blóð-
rásartruflun, sem valdið getur
blöndun á venu- og arteriu-
blóði„ Ekkert ber heldur á
dyspnoe, nema hjá þeim, sem
langt eru leiddir af sjúkdómn-
um.
Það sem beinir athyglinni að
diagnosis á coarctatio aortea
við fyrstu skoðun á sjúkling,
er hœkkaður blóðþrýstingur á
liandleggjum, en lœgri á fót-
um. Þetta getur hver læknir
fundið með venjulegum blóð-
þrýstingsmælingum, sem
framkvæmdar eru þá bæði á
handleggjum og fótum. Áður
en blóðþrýstingur er mældur,
er þó hægt að greina þetta
ástand með því, að þreifa eftir
púlsinum bæði á. handleggjum
og fótum og finna mismuninn,
hinn sterka og kröftuga púls á
handleggjunum en veikan og
stundum vart finnanlegan á
fótunum.
Það á því að vera föst regla,
við rannsókn á sjúklingum
með hypertensio arterialis, sér
í lagi sé um ungt fólk að ræða,
að palpera álltaf arteria fem-
oralis, poplitea, dorsalis pedis