Læknablaðið - 01.09.1950, Side 12
104
LÆKNABLAÐli)
náð hafa fermingar aldri og
þar yfir,
Það röntgen-einkenni, sem
mikilsverðast er, er hið svokall-
aða Roessler’s symptom, og sést
þannig, að neðri brún rifjanna
aftan til og laterált, er eins og
nöguð að útliti eða dældótt.
Þessar breytingar sjást þó mjög
sjaldan á tveimur efstu og
tveimur neðstu rifjum. Eins og
áður er getið, koma þessar
rifjabreytingar fram við, að
hinar geysilega víkkuðu rifja-
slagæðar naga (usurera) rif-
in neðanfrá. Þetta sést ekki ör-
ugglega fyrr en eftir 14 ára
aldur,,
Til þess að greina vansköp-
un þessa á sem öruggastan
hátt, er auðveldasta leiðin að
notfæra sér angiocardiografi,
sem er í því fólgin að sprautað
er inn í vena mediana cubiti
miklu magni af kontrast-efni,
sem svo streymir sína leið
gegnum hjartað, og er þá hægt
að sjá þrengslin í aorta á rönt-
genmyndinni. Gross er t. d. ó-
ánægður með árangurinn af
þessari aðferð, Segir hann að
kontrastefnið sé oft orðið of
þunnt, þ. e. a. s, of blandað
blóði þegar það kemst niður í
aorta,. Hann fær miklu betri
árangur af að sprauta því
gegnum katheter, sem lagt er
inn í arteria axillaris sinistra,
niður í arteria subclavia og inn
í aorta. Þá verður koncentra-
tionin skiljanlega miklu meiri.
Differential diagnosis:
Til greina koma hyperten-
sion og aðrir þeir sjúkdómar,
sem valda víkkun á arcus
aortae. Hypertensio arterialis
er strax fallin úr sögunni sé lé-
leg eða ekki finnanleg pulsa-
tion í arteria femoralis, og
sama gildir um rheumatiskan
morbus cordis 1 aorta-lokun-
um„
Aneurysma arcus aortae
getur valdið pulsation við
bringubeinið ofantil, en þar
sést einnig að larynx kippist
niður á við við hverja systolu
(Oliver-Cardarellis symptom).
Þetta sést aldrei við coarctatio
aortae. Einnig er hér hin lélega
pulsation í arteria femoralis til
aðgreiningar.
Dánarorsakir:
Hypertensionin á efri hluta
líkamans er á einn eða annan
hátt aðal dauðaorsökin,. Um er
að ræða: Hjarta-insufficiens,
ruptur á aorta ascendens >eða
heila-arterium, aneurysma
dissecans aortae og subacut
sýkla-endocarditis.
Hafa sumir (Hamilton og
Abbott 1928) fundið hjarta-
insufficiens í 75% tilfellanna.
Reifenstein, Levine, og Gross
(1947) fundu meðal 104 krufn-
inga á coarctatio aortae eftir-
farandi dánarorsakir:
Ca Va (22%) dóu úr sýkla-
endocarditis og aortitis.