Læknablaðið

Årgang

Læknablaðið - 01.09.1950, Side 19

Læknablaðið - 01.09.1950, Side 19
LÆKNABLAÐIÐ 111 PÉTUR MAUNÚSSON. F. 30/4. 1911, d. 4/11. 1949. Foreldrar hans voru Magnús Pétursson héraðslæknir og fyrri kona hans, Þorbjörg Sig- hvatsdóttir, bankastj. Bjarna- sonar. Hann var fæddur og uppal- inn á Hólmavík og fluttist með föður sínum til Reykjavíkur 1922„ Haustið 1924 settist hann í 1. bekk Menntaskólans og lauk stúdenlsprófi vorið 1930. Hóf síðan nám í læknisfræði og lauk prófi 1936. Næstu 3 árin gegndi hann ýmsum læknis- störfum hér á landi, en sigldi síðan til Danmerkur og dvaldi þar öll stríðsárin við framhalds nám, Árið 1945 kom hann heim aftur og stundaði almennar lækningar í Reykjavík, og gegndi jafnframl embætti tryggingaryfirlæknis, fram lil hausts 1948, en þá var hann skipaður deildarlæknir við lyflæknisdeild Landsspítalans, og gegndi hann því starfi til dauðadags. Kona Péturs var Guðrún Oddsdóttir Kristjánssonar frá Akureyri. Þetta eru í stuttu máli æviatriði hans. Hann hafði aðeins sýnt hvað 1 hon- um bjó og hvers mátti af hon- um vænta, en hann hafði þeg- ar sýnt að hann var afburða- maður„ Ekki kynntist ég Pétri neitt að ráði fyrr en í Háskólanum, þó að við værum bekkjarbræð- ur alla okkar skólatíð, en þá urðum við félagar og vinir. í Háskólanum bar hann þegar í upphafi af okkur félög- unum, og kom þar til frábær ástundun og áhugi, óvenju gott minni og skarpskyggni, enda lauk hann embættisprófi með mjöghárri einkunn (204% st.). Hygg ég að fáir stúdentar hafi gengið til prófs með jafn ör- ugga þekkingu. Hann kunni allt jafnvel, og hafði fullkom- ið vald á hverju viðfangsefni, en lét aldrei mikið yfir kunn- áltu sinni,, Þessir eiginleikar einkenndu Pétur í öllu starfi hans, meðan honum entist fjör. Hann var afkastamaður mikill, glöggur og samvikusamur. Dului' var hann í skapi og að jafnaði fáskiptinn. Heldur var hann seinmæltur og lá lágt rómur, en þegar hann tók lil

x

Læknablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.