Læknablaðið - 15.01.1953, Blaðsíða 5
LÆKNABLADID
GEFIÐ ÚT AF LÆKNAFÉLAGI REYKJAVÍKUR
Aðalritstjóri: ÓLAFUR GEIRSSON. Meðritstjórar: JÚLÍUS
SIGURJÓNSSON og ÞÓRARINN GUÐNASON.
37. árg. Reykjavík 1953 5. tbl. '
Fundargerð1) aðalfundar Læknafélags
íslands 12.-14. júní 1952
JJduncL
unnn i/ar haldmn
í /. Le
-Jdáil óianij
1. dagur (fimmtud. 12. júní).
Formaður, Valtýr Alberts-
son, setti fundinn kl. 4 e. h. í
upphafi fundarins minntist
hann félaga, er látizt höfðu
frá því er síðasti aðalfundur
var haldinn, þeirra Ríkarðs
Kristmundssonar læknis á
Kristneshæli og Ólafs Lárus-
sonar, fyrrverandi héraðs-
læknis. Einnig minntist hann
Valdemars læknis Erlendsson-
ar, sem mestan lduta ævi hafði
starfað í Danmörku. Vottuðu
fundarmenn hinum látnu
læknum virðingu sína með því
að rísa úr sætum.
Þá gat formaður um að
eftirtaldir læknar hefðu sótt
um upptöku í félagið: Ás-
mundur Brekkan, Eggert Ó.
Jóhannsson, Einar Pálsson,
Garðar G. Guðjónsson, Jón
1) AS heita má orðrétt eftir
fundarbók L. í.
Hannesson, Karl A. Mariusson,
Ólafur Björnsson, Sigurður
S. Magnússon, Skúli Helgason,
Snorri Jónsson, Tómas Helga-
son, Valtýr Bjarnason, Víking-
ur H. Arnórsson og Þorbjörg
Magnúsdóttir. Voru þeir sam-
þykktir með lófataki.
Formaður tilnefndi sem
fundarstjóra þá Baldur John-
sen héraðslækni og Jón Steff-
ensen prófessor. Enn fremur
tilnefndi hann sem fundarrit-
ara þá Ólaf P. Jónsson og Ólaf
Bjarnason.
Því næst tók Baldur John-
sen við fundarstjórn. Gaf hann
orðið formanni, Valtý Alberts-
syni, sem flutti greinagóða
skýrslu um starfsemi félagsins
á umliðnu ári.
S k ý r s 1 a f o r m a n n s:
Ekki eru liðnir fullir 10 mán-
uðir síðan fyrra árs lækna-