Læknablaðið - 15.01.1953, Qupperneq 6
LÆKNABLAÐIÐ
66
þingi lauk. Starfsárið hefir þvi
verið óvenju stutt og mun
skýrsla þessi bera þess nokkur
merki, því að á sumum sviðum
hefir minna áunnizt varðandi
hagsmunamál lækna en vonir
stóðu til.
Síðasta læknaþing kaus
nefnd til þess að rannsaka og
gera tillögur um heilbrigðis-
eftirlit i skólum. Nefnd þessi
starfaði af mildum dugnaði,
samdi álitsgerð og kom lienni
á framfæri við heilbrigðis-
stjórnina.
Á síðasta læknaþingi v?r
stjórn félagsins, ásamt J1 jáJ]«-
arnefnd, falið að svara bréfi,
sem félaginu hafði borizt frá
nefnd, skipaðri af ríkisstjórn-
inni til ])ess að endurskoða á-
fengislöggjöfina. í svarinu
gerði stjórn L. í. grein fyrir
sjónarmiði sínu varðandi ýmis
atriði, sem spurt var um og var
samkomulag um það við hjálp-
arnefndina.
Síðastliðið liaust ákvað fé-
lagsstjórnin að senda öllum
héraðslæknum og öðrum starf-
andi læknum, utan Reykjavík-
ur, bréf, þar sem óskað var
upplýsinga um bifreiðaeign
þeirra, þörf fyrir nýja l)ifreið
og um leið hvernig útkoman
hefði orðið á rekstri hifreiðar
undanfarið. Svör hárust held-
ur seint, en komu þó að lokum
frá velflestum. Kom þá á dag-
inn, að ótrúlega margir lækn-
ar voru í bifreiðahraki. Flestir
töldu sig hafa tapað á bifreið-
unum, einkum þeim gömlu og
úr sér gengnu, en sárafáir virt-
ust þó geta bjargast af án bif-
reiðar. Niðurslaðan varð sú,
að 24 héraðsl. og 10 prakt-
iserandi læknar, utan Reykja-
víkur, þyrftu að fá nýja hif-
reið, ef vel væri. Stjórn félags-
ins hefir þrisvar rætt bifreiða-
eklu lækna við Fjárliagsráð og
sent því hréf um málið.
Svör Fjárliagsráðs hafa jafn-
an verið nokkuð loðin og loka-
svar er enn ókomið. Þess er þó
að vænta, að læknum verði
veitt nokkur úrlausn og liefir
komið fram ósk um að stjórn
félagsins úthlutaði þeim inn-
flutningsleyfum, sem veitt
kunna að verða, til þeirra
lækna, sem brýnasta þörf hafa
fyrir hifreið. Þetta er að sjálf-
sögðu auðvelt fyrir stjórnina,
ef levfin eru nógu mörg, en
mun reynast óþokkasælt verk,
ef innflulningsleyfin eru fá
miðuð við þörfina.*)
Þá kem ég að gj aldskrármál-
inu:
Að síðasta læknaþingi loknu,
snéri ég mér til landlæknis og
har fram kvartanir héraðs-
lækna yfir gjaldskránni. Lof-
aði liann að taka málið til at-
hugunar. Um líkt leyti átti ég
*) Eftir að fundinum lauk voru
veitt leyfi fyrir 8 jeppum og 6 fólks-
bifreiðum amerískum og hefir
greinargerð verið birt um úthlutun
þeirra. Stjórn L. í.