Læknablaðið - 15.01.1953, Side 7
L Æ K N A B L A Ð I Ð
67
tal við forráðamenn Trygging-
arstofnunar ríkisins og var
mér tjáð, að farnir væru að
berast reikningar frá nokkr-
um héraðslæknum, allmiklu
hærri en löghoðin gjaldskrá
leyfði. Var mér bent á, að við
slíkt yrði ekki unað. Stofnun-
in virtist þó viðurkenna að
gjaldskráin væri orðin allmjög
á eflir tímanum, en færðist
undan því að beita sér fyrir
gjaldskrárhækkun. Hins veg-
ar fengust loforð um, að ekki
skvldi spillt fyrir því, að hér-
aðslæknar fengju uokkra leið-
réttingu mála sinna, ef heil-
brigðisstjórnin hefði þar frum-
kvæði. Til þess að koma frek-
ari skrið á málið og gefa um
leið héraðslæknum tækifæri til
þess að koma sjónarmiðum
sínum á framfæri, fengum við
héraðslæknana Pál Kolka og
Eggert Einarsson, ásamt Ezra
Péturssyni lækni, til þess að
ræða málið við landlækni og
Tryggingarstofnun. Að þeim
viðræðum loknum, ritaði svo
stjórn félagsins heilbrigðis-
málaráðuneytinu bréf um mál-
ið.
Eins og læknum er þegar
kunnugt, var gjaldskráin
liækkuð um 50 af hundraði, og
munu margir óánægðir vfir
þeim málalokum, þó að aðrir
hafi talið þetta viðunandi úr-
lausn í hráð. Sennilega má
kenna það mest félagsdevfð,
hvernig taxtamálunum er
komið. Landlæknir tjáði mér,
að hann myndi ekki til að
formleg beiðni um gjaldskrár-
hækkun hefði verið borin fram
undanfarin 5 ár, fyrr en því
máli var hreyft síðastliðið
haust. Hefði þó sennilega ver-
ið vænlegra að hreyfa því máli
fyrr. Var á landlækni að heyra,
að stjórn heilhrigðismálanna
hefði sýnt allmikla rausn með
því að hækka gjaldskrána um
50 af hundraði i fyrsta skiptið
sem eftir liækkun var leitað.
Stjórn L. í. telur það óeðlilegt
að gjaldskráin skuli enn um
sinn vera slitin úr öllu sam-
liengi við kaupgjald og verðlag
í landinu. Með sívaxandi dýr-
tíð geta þær kjarabætur, sem
nú fengust, hjaðnað fvrr en
varir.
A síðasta læknaþingi, hóf
Eggert B. Einarsson héraðs-
læknir máls á því, að sumir
héraðslæknar greiddu okur-
leigu fyrir læknisbústaði, en
öðrum væri gert að greiða
mjög sanngjarnt gjald fyrir
húsnæði. Skoraði hann á stjórn
félagsins að fá þessu kippt í
lag. Nokkrir héraðslæknar
hafa kvartað vfir hárri húsa-
leigu við stjórnina. Leikur
grunur á, að sum héruð vilji
reikna sér leigutekjur af fram-
lagi ríkissjóðs til bústaðanna,
sem vitanlega nær engri átt.
Ég átti tal við landlækni um
málið, vegna þess að auðveld-
ast væri fyrir hann að kippa