Læknablaðið - 15.01.1953, Blaðsíða 8
68
LÆKNABLAÐIÐ
þessu í iag. Taldi hann að
margir héraðslæknar byggju
við sanngjörn leigukjör, en
eðlilegt væri að leiga væri mis-
liá, vegna þess að sumir lækna-
bústaðir hefðu verið reistir á
síðustu og verstu tímum og
lcostað mikið fé. Stjórnin
reyndi að afla sér upplýsinga
um leigumála tækna og kom
á daginn að þeir húa við mis-
jöfn kjör. Til dæmis greiða
sumir læknar 250—300 kr. á
mánuði fyrir nýlega og sóma-
samlega hústaði, en aðrir 550
—600 kr. eða þaðan af meira.
Sums staðar er kostnaður við
upphitun og raflýsingu gífur-
legur og verður héruðunum
yfirleitt ekki um það kennt.
Þar sem bústaður lækuis og
sjúkraskýli eru undir sama
þaki getur þó niðurjöfnun á
þeim kostnaði orðið lækninum
óhagstæð. Er nauðsynlegt að
læknirinn láti ekki ganga á
hlut sinn og kvarti við land-
lækni, ef ósanngirni er liöfð í
frammi. Héraðslæknir einn
fékk allverulega lækkun, er
yfirskattanefnd var falið að
meta leiguna. Vonandi kemur
ekki til þess, að stjórn L. í.
þurfi að vara félagsmenn við
sumum héruðum, vegna óeðli-
lega hárrar húsaleigu.
Snorri Ólafsson læknir tjáði
stjórninni að bifreið hans tiefði
laskazt verulega í árekstri,
sem hann átti enga sök á. Fór
hann þess á leit við trygging-
arfélagið, að það greiddi hon-
um nokkra dagpeninga meðan
á viðgerð stæði, en fékk dauf-
ar undirtektir í byrjun. Við
nánari eftirgrennslan kom í
tjós, að atvinnubílstjórar liafa
hér sérsamninga við trygging-
arfélögin um dagpeninga með-
an á slíkri viðgerð stendur.
Hafa sum þeirra að minnsta
kosti greitt læknum nokkrar
bætur, þegar eins hefir staðið
á, en undirtektir verið nokkuð
misjafnar. Væri því heppilegt
að samtök lækna næðu samn-
ingum við tryggingarfélögin
um þetta atriði.
Leitað liefir verið eftir stuðn-
ingi félagssamtaka í Reykja-
vík, vegna byggingar fyrirhug-
aðs handritasafns, og færi vel
á að L. í. legði þar eitthvað af
mörkum.
Þá hefir verið stofnað í
Reykjavík félag til hjálpar
bækluðu og lömuðu fólki. Hef-
ir það heitið á lækna að duga
sér. Fæ ég ekki séð, að læknar
geti það á annan hátt, en með
því að gerast félagar.
Þess er vert að geta, að Brit-
ish Medical Association hefir
sýnt L. í. þann sóma að bjóða
þvi að senda fulltrúa á þing,
sem brezka og írska læknafé-
lagið lialda sameiginlega í
Dublin í sumar. Boð þetta lief-
ir að sjálfsögðu verið þakkað,
en ekki er enn fullvist hvort
nokkur liefir hentugleika til
að mæta þar fyrir liönd L. í.