Læknablaðið - 15.01.1953, Side 9
LÆKNABLAÐIÐ
69
Félaginu hefir borizt feiknin
öll af bréfum og fyrirspurnum,
einkum frá alþjóðafélagsskap
lækna, og hefir verið mikið
verk að svara þeim öllum. Það
starf hefir að sjálfsögðu mætt
á ritaranum.
Fundarstjóri þakkaði skýrslu
formanns og ræddi nokkuð
taxtamál héraðslækna. Um
þetta mál ræddu einnig Valtýr
Alhertsson og Eggert B. Ein-
arsson.
Þá las gjaldkeri upp reikn-
inga félagsins og eftir nokkrar
umræður voru þeir samþykktir
með öllum greiddum atkvæð-
um.*)
Næsti liður á dagskrá var að
ákveða árstillag félagsmanna,
en ákvörðun um það var frest-
að, þar til frumvarp til nýrra
félagslaga, er lá fyrir fundin-
um, hefði verið afgreitt.
Frestað var að lesa upp
reikninga Ekknasjóðs, vegna
fjarveru gjaldkera.
*) Stjórnin hafði, að athuguðu
máli, ekki séð sér fært að inn-
heimta ógreidd árstillög frá 1949
og eldri, en ákvað að leggja þvi
meira kapp á innheimtu árgjalda
fyrir 1950 og 1951, enda tókst að
innheimta öll þau gjöld að fullu.
Umræðurnar snérust um þessar „af-
skriftir“, sem ekki allir voru ánægð-
ir með, en skoðast þó samþykktar
mótatkvæðalaust með samþykkt
reikninganna.
Eignaraukning nam kr. 40.391,19
og eignir samtals kr. 89.949,88.
Tryggingamál lækna. Dr.
Helgi Tómasson flutti skýrslu
nefndar, er kosin hafði verið
á síðasta aðalfundi, til athug-
unar á tryggingamálum lækna,
og bar hann fram eftirfarandi
tillögu:
„Nefndin leggur til, að máli
þessu verði frestað að svo
stöddu, vegna skipulagsbreyt-
inga þeirra, sem fyrirhugaðar
eru á Læknafélagi íslands.“
Tillagan var samþykkt með
samhljóða atkvæðum.
Lagabreyting, í. umræða.
Því næst var tekið til umræðu
lagafrumvarp það, er milli-
þinganefnd hafði samið og
lagt fvrir fundinn. Formaður,
Valtýr Albertsson reifaði inálið
og gat þess, að frumvarpið
væri að verulegu levti sniðið
eftir lögum norska læknafé-
lagsins.
Auk þess tóku eftirtaldir
læknar til máls um frumvarp-
ið: Kristinn Stefánsson, Július
Sigurjónsson, Jón Steffensen,
Páll Sigurðsson og Brynjúlfur
Dagsson. Kristinn Stefánsson
lagði fram skriflegar breyting-
artillögur frá Læknafélagi
Beykjavíkur. Ennfremur lögðu
fram skriflegar brevtingartil-
lögur þeir Júlíus Sigurjónsson
og Ólafur Geirsson.
Nefnd var kosin til athugun-
ar á lagafrumvarpinu og breyt-
ingartillögum, er horizl höfðu,
og skyldi hún skila áliti um
málið á fundi næsta dag.