Læknablaðið - 15.01.1953, Side 10
70
LÆKNABLAÐIÐ
í nefndina voru þessir menn
kosnir: Kristinn Stefánsson,
Páll Sigurðsson, Sigurður Sig-
urðsson, Sigurður Ólason,
Bjarni Guðmundsson, Páll
Kolka og Eggert B. Einarsson.
Fundarlilé kl. 7.
Erindi. Fundur var settur að
nýju kl. 8.45. Prófessor Jón
Steffensen setti fundinn. Því
næst flutti dr. Óskar Þ. Þórðar-
son ítarlegt og greinargott er-
indi um Coxsackie vírus og
stingsótt. Erindið var þakkað
með lófataki (var síðar birt
í Læknablaðinu, 37. árg. 2.—
3. tbl.). Til máls tóku
um erindi Óskars: Prófessor
Jón Steffensen, Valtýr Alberts-.
son, próf. Jón Hj. Sigurðsson
og Björn Sigurðsson. Fyrirles-
ari sagði síðan nokkur orð að
lokum.
Þá flutti Kristinn Stefáns-
son fróðlegt erindi um: Nöfn
og form lyfja. Erindið var
þakkað með lófataki. Um er-
indi Kristins tóku til máls: Jón
Stel'fensen, Valtýr Albertsson
og Páll Ivolka, og að lokum
sagði fyrirlesari nokkur orð.
Fundi frestað til næsta dags.
Baldur Johnsen
fundarstjóri.
Ólafur P. Jónsson
fundarritari.
2. dagur (föstud. 13. júní).
Kl. 4, J). 13. júní, var fundur
settur aftur. Baldur .Tolmsen
héraðslæknir stjórnaði fundi.
Fundargerð frá deginum áð-
ur var lesin upp og samþykkt
samhljóða.
Ekknasjóður. Dr. Halldór
Hansen las upp reikning
Ekknasjóðs fyrir órið 1951.
Eignir sjóðsins í árslok 1951
voru kr. 149.102,66.
Um reikningana tóku til
máls: Valtýr Albertsson, Krist-
inn Stefánsson, Helgi Tómas-
son, Páll Ivolka, Brynjúlfur
Dagsson, Skúli Tboroddsen.
Nokkrar munnlegar tillögur
komu fram, bæði um ávöxtun
sjóðsins og fjáröflun bonum til
handa.
Lagabreyting, 2. umræða.
Því næst flutti Kristinn Stef-
ánsson, er var framsögumaður
nefndar þeirrar, er bafði laga-
frumvarpið til athugunar,
framsöguræðu um málið. —
Nefndin hafði ekki lokið störf-
um og óskaði frests til næsta
dags. Það kom í ljós, að nefnd-
in var klofin i málinu, að því
er snerti tölu fulltrúa svæða-
félaganna. Óskaði nefndin efl-
ir fundarsamþykkt um ])að at-
riði, áður en bún héldi áfram
störfum.
Dr. Helgi Tómasson lýsti sig
eindregið á móti lagafrum-
varpinu og bar fram svobljóð-
andi tillögu:
„Aðalfundur Læknafélags
íslands, haldinn í Revkjavik
12.—14. júní 1952, sér, að svo
stöddu, ekki ástæðu til Jjess
að breyta lögum félagsins.“