Læknablaðið - 15.01.1953, Side 11
L Æ K N A B L A Ð I Ð
71
Urðu nú miklar og allheitar
umræður um málið. Þessir
tóku til máls: Páll Kolka,
Haulcur Kristjánsson, Valtýr
Albertsson, Bjarni Guðmunds-
son, Baldur Johnsen, Kristinn
Stefánsson, Brynjúlfur Dags-
son, Júlíus Sigurjónsson og
Sigurður Sigurðsson.
Tillaga Helga Tómassonar
var því næst borin undir at-
kvæði og var hún felld með
16 atkvæðum gegn 2.
Próf. Júlíus Sigurjónsson bar
því næst fram breytingartil-
lögu við 5. gr. lagafrumvarps-
ins á þá leið, að ekkert eitt
svæðisfélag skuli hafa fleiri
fulltrúa í fulltrúaráði en öll
hin svæðafélögin til samans.
Tillagan var borin undir at-
kvæði og samþykkt með 15 al-
kvæðum gegn 4.
Fundi var því næst frestað
til kvölds.
Erindi. Kl. 8.45 setti próf.
Jón Steffensen fund að nýju.
Gaf hann orðið dr. Jóhannesi
Björnssvni, er flutti ítarlegt og
greinargott erindi um: Krabba-
mein í endaþarmi og ristli.
(Sjá Lhl. 37. árg. 4. tbl.). Erind-
ið var þakkað með lófataki.
Þessir tóku til máls um erind-
ið: Dr. IJalldór Hansen, próf.
Guðmundur Thoroddsen, Val-
týr Albertsson, Bjarni Oddsson
og Friðrik Einarsson. Kristinn
Stefánsson lagði til, að skipuð
yrði þriggja manna nefnd
skurðlækna, er athugaði,
hvernig unnt væri að „central-
isera stór-chirurgie“. Stungið
var upp á dr. Halldóri
Hansen, próf. Snorra Hall-
grímssyni og Guðmundi K.
Péturssyni, yfirlækni. Sam-
þykkt með öllum greiddum
atkvæðum.
Þá flutti Ólafur Geirsson,
berklalæknir, fróðlegt og
greinargott erindi um loft-
brjóstmeðferð utan sjúkra-
húss. Sýndi hann ennfremur
nokkrar röntgenmyndir af
extrapleural pneumotliorax.
Erindið var jjakkað með lófa-
talci. Oddur Ólafsson og fund-
arstjóri tóku til máls og þökk-
uðu erindið.
Fundi frestað til næsta dags.
Jón Steffensen
fundarstjóri.
Ólafur P. Jónsson
fundarritari.
3. dagur (laugard. lb. júní).
Próf. Jón Steffensen setti
fund að nýju kl. 2.30, laugar-
daginn 14. júní. Dr. Sigurður
Sigurðsson kvaddi sér hljóðs
utan dagskrár og lagði til, að
fundurinn sendi ekkju og fjöl-
skyldu Ólafs lieitins Lárusson-
ar, fyrrv. héraðslæknis, sam-
úðarkveðju (útför hans för
fram þenna dag). Formanui
var falið að senda kveðjuna.
Fundargerð frá deginum áð-
ur var lesin upp og samþykkt.
Árstillag. Þá var tekið fvrir,