Læknablaðið - 15.01.1953, Qupperneq 12
72
LÆKNABLAÐIÐ
að ákveða árstillag félags-
manna. Valtýr Albertsson reif-
aði málið og ræddi einnig um
tillög til Ekknasjóðs. Til máls
tóku einnig um þetta atriði
Eggert Briem Einarsson, Jón
Steffensen og Ólafur Geirsson.
Hinn síðastnefndi taldi nauð-
syn bera til, að komið yrði á
fót ekknatryggingum svipuð-
um þeim sem L. R. hefir. Fund-
arstjóri og Valtýr Albertsson
lögðu til, að árgjald yrði kr.
200. Einnig að stjórninni væri
falið að leita eftir þvi við fé-
laga í L. í., utan L. R., að þeir
greiddu að auki kr. 100 í
ekknasjóð. Tillagan var sam-
þykkt með öllum greiddum at-
kvæðurn.
Codex ethicus. Næst lá fyrir
að kjósa nefnd til athugunar á
codex ethicus. í nefnd þessa
stakk Valtýr Albertsson upp á
eftirtöldum mönnum: Sigurði
Sigurðssvni, Páli Sigurðssyni
og Ólafi Geirssyni. Voru þeir
allir samþvkktir samhljóða.
Fulltrúar á þing B.S.R.B.
voru kosnir: Ólafur Bjarna-
son, Eggert Br. Einarsson, Esra
Pétursson og Ólafur Einars-
son.
1 gerðardóm slcv. codex et-
hicus voru kosnir: Sigurður
Sigurðsson og Árni Árnason.
Til vara: Bjarni Snæbjörnsson
og Ólafur Einarsson.
Ýmis hagsmunamál lækna.
Valtýr Albertsson ræddi um
taxtamál og bifreiða úthlutun.
Lagði liann til, að liéraðslækn-
ar gengju á fund heilbrigðis-
málaráðherra til að ræða þessi
mál við liann. Einnig minnt-
ist hann á síðasta fund Al-
þjóðalæknafélagsins og gat
þess, að L. í. hefðu borizt boð
um að senda fulltrúa á fund
félagsins, sem ákveðinn væri í
Aþenu í október næstkomandi.
L. í. veitir styrk, að upphæð
kr. 500, þeim, sem vill takast
á hendur að mæta á fundinum.
Páll Ivolka taldi illa farið, ef
ekki yrði sendur fulltrúi á
fundinn. Minnti einnig á fund
norrænna embættislækna í
Danörku í sumar
Valtýr Albertsson minntist á
söfnun til byggingar handrita-
safns (skv. bréfi frá Stúdenta-
félagi Reykjavíkur) og áleit
tilblýðilegt, að L. í. legði fram
nokkra fjárupphæð í því skyni.
Tillaga frá Friðrik Einarssyni
um það, að L. í. legði fram kr.
5000 (fimm þúsund krónur) til
handritasafnsins, var sam-
þykkt með 16 atkvæðum gegn
4.
Stjórnarkosning. Þá fór fram
stjórnarkosning. Formaður
var kosinn Valtýr Albertsson
með 24 atkvæðum. Jón Steffen-
sen fékk 1 atkvæði. Ritari var
kosinn Júlíus Sigurjónsson
með 24 atkvæðum og gjald-
keri Jón Sigurðsson með 25
atkvæðum. — Varastjórn var