Læknablaðið - 15.01.1953, Síða 13
LÆKNABLAÐIÐ
73
endurkosin með lófataki,
en hana skipa: Helgi Tómas-
son, Friðrik Einarsson og Berg-
sveinn Ólafsson.
Lagcibreyting, 3. umræða.
Næst var lagafrumvarpið
tekið til umræðu að nýju.
Nefndin liafði gert á því mikl-
ar breytingar,1 og skýrði fram-
sögumaður nefndarinnar,
Kristinn Stefánsson, þær og
har saman við frumvarp milli-
þinganefndar. í því sambandi
óskaði framsögumaður bókað,
til nánari skýringar á 10. gr.
frumvarpsins, að þar sem tal-
að væri um lækna, sem bú-
settir væru utan l'élagssvæðis,
væri bæði átt við lækna, sem
kvnnu að hafa verið félagar í
viðkomandi svæðisfélagi, en
flutzt burt af félagssvæðinu,
og einnig lækna, sem aldrei
hefðu verið félagar í viðkom-
andi félagi.
Að ræðu Kristins lokinni
þakkaði prófessor Jón Steffen-
sen nefndinni vel unnin störf.
Próf. Júlíus Sigurjónsson taldi
sig yfirleitt samþykkan þeim
breytingum, sem nefndin hefði
gert á frumvarinu. Hann vildi
þó m. a. leggja fram eftirfar-
andi tillögu til orðalagsbreyl-
ingar á frumvarpinu eins og
það nú lægi fyrir (sjá frum-
varpið í heild, hls. 75—79):
*) Efnisbreytingar munu varla
geta talizt miklar. Stjórn L. í.
„í stað f ulltrúaráðsfundur
komi aðatfundur L. í.
I stað fulltrúaráð komi aðal-
. .fundur L. 1. eða fulltrúar,
eftir því sem við á.“
Til máls um frumvarpið
tóku einnig: Prófessor Jóhann
Sæmundsson, Valtýr Alberts-
son, Friðrik Einarsson og Páll
Kolka.
Tillaga Júlíusar var sam-
þykkt með 12 samhljóða at-
kvæðum.
Þá voru einstakar greinar
frumvarpsins Iiornar undir at-
kvæði.
1., 2., 3. og 4. gr. voru sam-
þykktar samhljóða óbrevttar
(sbr þó brevtingartillögu .1. S.).
5. gr. samþykkt samhljóða
með þeirri breytingu, að í stað
„aukafélagar“ komi „félagar“
(sbr. brtt. J. S.).
6. gr. samþykkt samhljóða
með þeim breytingum, að í stað
„svæðisfélögum“ komi „að-
ildarfélögum“ og í stað „með-
limi“ komi „félaga", sbr. einn-
ig [hér og síðar] brtt. J. S.
7. gr. Greinin hefjist þannig:
„Á aðalfundi L. í. eiga sæli
kjörnir fulltrúar skv. 6. gr.“
Siðan, í stað orðanna „ef þurfa
þykir" komi „stjórnin getur
kvatt fulltrúa til aukafundar,
ef hún telur þess þörf". Grein-
in þannig breytt samþvkkt
samhljóða.
8. gr. A 8. gr. var gerð sú
breyting, að í stað orðanna