Læknablaðið - 15.01.1953, Síða 15
LÆKNABLAÐIÐ
75
LÖG
Læknafélags Islands
Samþykkt á aðalfundi félags
ins l'i. júní 1952.
Prentuð hér eftir frumvarpi laga-
nefndar og eru breytingar, sem sam-
þykktar voru á síðasta degi fund-
arins (sbr. fundargerð) eða nauð-
synlegar þykja vegna samræminga,
sýndar þannig, að orð sem falla nið-
ur eru sett innan bornklofa [ ], en
þau sem bætast við eru prentuð með
skáletri.
!• gr.
Félagið heitir Læknafélag
íslands, skammstafað L. í. Það
er samband svæðafélaga og
annarra félaga íslenzkra
lækna. Lögheimili þess og
varnarþing er í Reykjavik.
Reikningsár félagsins er frá 1.
júní til 31. maí.
2. gr.
Tilgangur félagsins er:
1. Að efla hag og sóma hinnar
íslenzkn læknastéttar og
auka kynni og stéttarþroska
félagsmanna.
2. Að stuðla að aukinni mennt-
un lækna og glæða áhuga
þeirra fyrir öllu því, er að
starfi þeirra lýtur.
3. Að efla samvinnu þeirra um
allt, sem horfir til framfara
í heilhrigðismálum þjóðar-
innar.
3. gr.
Félagið hefir sérstakar siða-
reglur (codex ethicus), sem
samdar eru með hliðsjón af
siðareglum alþjóðalæknafé-
lagsins (International Code of
Medical Ethics).
4. gr.
Rétt til inngöngu i Læknafé-
lag íslands eiga eftirtalin
svæðafélög:
a. 1. Læknafélag Reykjavíkur.
2. Læknafélag Miðvestur-
lands.
3. Læknafélag Vestfjarða.
4. Læknafélag Norðvestur-
lands.
5. Læknafélag Akureyrar.
6. Læknafélag Norðaustur-
lands.
7. Læknafélag Austurlands.
8. Læknafélag Suðurlands.
b. Ennfremur önnur félög, sem
stofnuð kunna að verða og að-
alfundur L. í. [fulltrúaráð]
viðurkennir tæk í L. í.
5. gr.
Rétt til inngöngu i svæðisfé-
lag liafa allir íslendingar, sem
lokið hafa embættisprófi í
læknisfræði, búsettir eða starf-
andi á félagssvæðinu.
Aðalfundur L. í. [fulltrúa-
ráð] getur tekið í L. í. lækna,
sem af eðlilegum ástæðum eru
ekki í svæðisfélagi, og enn-
fremur erlenda lækna, ef sér-
stakar ástæður eru fyrir hendi,
enda greiði slíkir [auka]félag-
ar sama gjald og svæðisfélög
greiða fyrir meðlimi sína.