Læknablaðið - 15.01.1953, Qupperneq 16
76
LÆKN ABLAÐIÐ
6. gr.
Stjórn og fulltrúar[áð] fara
með málefni félagsins. Full-
trúar eru kosnir af aðildarfé-
lögum [svæðisfélögum] á aðal-
fundi til tveggja ára í senn. Fé-
lög með 15 félaga [meðlimi]
eða færri kjósa 1 fulltrúa, en
stærri félög 1 fulltrúa fvrir
hverja 15 félaga. Átta félagar
umfram 15 eða margfeldi af
15 veitir auk þess rétt til full-
trúa. Jafnmargir fulltrúar
skulu kosnir til vara. Þó má
ekkert eitt aðildarfélag kjósa
fleiri fulltrúa en öll hin til
samans.
7. gr.
A aðalfundi eiga sæti kjörnir
fulltrúar skv. 6 gr.
Aðalfund [Fulltrúaráðsfund]
skal halda ár hvert, að jafnaði
á tímabilinu júní—september.
[og oftar ef þurfa þykir].
Stjórnin getur og kvatt fulttrúa
til aukafundar, ef hún telur
þess þörf.
Boðar stjórnin til fund-
ar með minnst 6 vikna fyrir-
vara. Formaður stýrir fundi.
Fundur er lögmætur, ef hann
er löglega hoðaður. Afl at-
kvæða ræður úrslitum, nema
öðruvísi sé ákveðið í lögum
þessum. Verði atkvæði jöfn,
ræður atkvæði formanns úr-
slitum. Skjóta skal máli til
skriflegrar atkvæðagreiðslu
allra félagsmanna, ef tveir
fimmtu hlutar mættra fulltrúa
óska þess. Varafulltrúar, sem
mæta á fundinum auk aðalfull-
trúa, liafa tillögu- en ekki
atkvæðisrétt. Aðalfundur kýs
þriggja manna stjórn til
tveggja ára, formann, ritara og
féhirði og jafnmarga vara-
menn. Stjórnarkosning er
skrifleg, og skal hver stjórnar-
meðlimur kosinn sérstaklega,
þó má kjósa varastjórn alla í
einu. í stjórn má velja aðra
félaga en fulltrúa, [utan full-
trúaráðs], enda falli þá niður
umhoð fulltrúa frá viðkomandi
aðildarf élagi [svæðisfélagi]
eftir samkomulagi við stjórn
jjess. Formann má aðeins end-
urkjósa einu sinni.
8. gr.
Verksvið stjórnar er að sjá
um daglegar framkvæmdir,
vera á verði um hag íslenzku
læknastéttarinnar, félaga henn-
ar og einstaklinga og sjá um
framkvæmdir á samjjvkktum
fulltrúaráðs. Hún kemur fram
út á við sem fulltrúi félagsins
og aðstoðar við gerð [gerir]
samninga um kaup og kjör
fyrir aðildarfélög og einstakl-
inga, ef jjess er óskað. Ávallt
Jjarf samþykki hennar til j)ess
að slíkir samningar séu gildir.
Hún semur árlega skýrslu um
starf félagsins og leggur fyr-
ir aðalfund [fulltrúaráðsfund]
ásamt reikningum félagsins,
endurskoðuðum af tveim
mönnum, en annar þeirra skal