Læknablaðið - 15.01.1953, Blaðsíða 18
78
LÆKNABLAÐIi)
fasta atvinnu, né byrjað hafa
sjálfstætt læknisstarf, vera
undanþegnir félagsgjöldum.
Stjórn L. f. getur veitt félaga
[aukafélögum] sams konar
undanþágur og aðildarfélög fé-
lögum sínum.
12. gr.
Stjórn hvers aðildarfélags
skal senda stjórn L. í. árs-
skýrslu sína ásamt tölu gjald-
skyldra félaga og árstillagi fé-
lagsins til L. f. fyrir lok apríl-
mánaðar ár hvert.
Nú óskar aðildarfélag, að
aðalfundur L. 1. [fulltrúaráð]
taki eitthvert mál til meðferð-
ar [á ársfundi sínum] og skal
þá tilkynning um það, ásamt
greinargerð, send með árs-
skýrslunni.
Stjórn aðildarfélaganna skal
hafa eftirlit með því, að félags-
menn þeirra hlýði codex ethi-
cus, lögum og samþykktum L.
í. Verði hún vör við stórfelld-
ar misfellur í þessum efnum,
tilkynnir hún það stjórn L. í.
Nú greiðir aðildarfélag eða
gjaldskyldur aukafélagi ekki
árstillag til L. í. innan 6 mán-
aða frá gjalddaga, og getur
stjórn L. f. svipt hann félags-
réttindum, enda hafi hann
verið aðvaraður.
13. gr.
Stjórn L. í. [Framkvæmda-
stjórn] skal vara opinherlega
við stöðum eða embættum, er
hún telur varhugaverð eða ó-
aðgengileg fyrir lækna. Enginn
félagsmaður má starfa fyrir
utanfélagslækni, né vinna Ivjá
fyrirtæki, sem hefur utanfé-
lagslækni í þjónustu sinni. Þó
getur stjórnin veitt undanþágu
frá þessu til hráðahirgða, ef
hún telur mikið við liggja eða
almenningsheill varða. Skal
hera þess háttar mál undir að-
alfund [fulltrúaráð]eins fljótt
og við verður komið.
Enginn félagsmaður má
sækja um stöður eða embætti,
nema þau hafi verið auglýst til
umsóknar með minnst 4 vikna
fyrirvara.
14. gr.
Ef félagi gerir sig líklegan
til að hrjóta lög félagsins eða
samþykktir eða hegðar sér
ósæmilega, hvort heldur í
læknisstarfi eða í sambandi við
umsókn um stöðu, skal hann
aðvaraður.
Nú hregzt félagsmaður þeim
skyldum, sem honum her að
inna af hendi [samkv. samn-
ingi L. f. við einhvern aðila, t.
d. sjúkrasamlag eða trygging-
arstofnun], eða hrýtur lög fé-
lagsins eða codex ethicus, og
skal þá veita honum áminn-
ingu. Sé um ítrekað brot að
iæða, má gera honum að
greiða sekt, er nemi 100—1000
kr., og rennur sektarféð til
Ekknasjóðs. Sama máli gegn-
ir, ef félagsmaður aðhefst eitt-