Læknablaðið - 15.01.1953, Page 20
80
LÆKNABLAÐIÐ
Fm L./.
Alþjóðafundur um læknakennslu
(First World Conference on Medi-
cal Education) verður haldinn á
vegum Alþjóða Læknafélagsins
(WMA) i London 25.—29. ágúst 1953.
Læknar, sem kynnu að hafa að-
stæður til að sækja þennan fund
sem fulltrúar, eru beðnir að gera
stjórn L. í. aðvart hið allra fyrsta.
L. í. hefur hug á að veita a. m. k.
einum fulltrúa nokkurn styrk til
að sækja fundinn.
Sjöunda þing Alþjóðalæknafélags-
ins (WMA) verður haldið i Haag 31.
ág.—4. sept. 1953. Læknar, sem ættu
hægt með að sitja þingið sem full-
trúar L. í., eru beðnir að gera stjórn-
inni aðvart hið fyrsta og a. m. k.
fyrir febrúarlok.
British Medical Association býður
L. f. að senda fulltrúa á ársþing sitt
í Cardiff 13.—17. júlí í sumar. Ó-
keypis dvöl í Cardiff fundartímann.
Þeir, sem liafa hug á að þyggja
þetta boð, eru beðnir að láta stjórn
L. í. vita fyrir 15. marz n. k.
Alþjóðaráðstefna lækna um kven-
sjúkdómafræði og fæðingarhjálp í
París 22.—23. maí 1953.
L. í. hefir borizt tilkynning um
þetta mót frá dóms- og kirkjumála-
ráðuneytinu og óskar ráðuneytið eft-
ir að fá að vita hið allra fyrsta,
livort læknar héðan hafi í huga að
sækja mótið.
því ei' svo færi, að tvímælis þætti
orka um einhverjar orðalagsbreyt-
ingar, hvort í þeim fælust efnis-
breytingar, mundi textinn, sem hér
birtist, ráða.
*
Ur erl. ritum.
Chloramphenicol kennt um
anæmia aplastica.
Chloromycetin eða chloramph-
enicol var upphaflega ekki talið til
þeirra lyfja, sem veruleg hætta væri
á að blóðsjúkdómar hlytust af. Þó
var snennna á það bent, að efna-
fræðileg gerð þess væri þannig, að
möguleiki gæti verið á hættulegum
áhrifum á blóðmyndun. Nú eru
hins vegar óðum, og úr ýmsum
áttum, að safnast saman skýrslur
um sjúklinga, sem talið er að feng-
ið hafi anæmia aplastica af chlor-
amphenicol, svo að stundum hefur
dregið til dauða, þrátt fyrir allar
aðgerðir. Amerisk og ensk lækna-
rit frá júlí og ág. 1952 (J.A.M.A. og
Brit. Med. Journal) benda rækilega
á þessa hættu. Sérstaklega er varað
við endurtekinni notkun lyfsins,
þótt það sé eklci gefið lengi í hvert
sinn og alllangt líði á milli. Er
jafnvel búizt við að svo kunni að
fara, að varla verði talið réttmætt
að nota lyfið nema við taugaveiki,
þar eð aureomycin geti annars oft-
ast komið í stað þess.
Rétt er að geta þess, að sumar
skýrslurnar hafa verið véfengdar
á þeim grundvelli, að sjúklingarnir
hafi einnig fengið önnur lyf, t. d.
sulfa o. fl., sem valdið geta sams
konar blóðsjúkdómum.
Hér á landi hefir chlorampheni-
col verið notað talsvert, og ættu
læknar þvi að kynna sér vel ann-
marka þess.
Ó. G.
Afgreiðsla og innheimta Læknablaðsins er í Félagsprentsmiðjunni h.f.,
Reykjavík. Sími 1640. Pósthólf 757.
Félagsprentsmiðjan h.f.