Læknablaðið

Ukioqatigiit

Læknablaðið - 01.03.1955, Qupperneq 10

Læknablaðið - 01.03.1955, Qupperneq 10
20 LÆKNABLAÐIÐ laga til umsagnar. Gert var ráð fyrir að læknishéruðum yrði fjölgað um eitt, Höfðahérað og Álafossliérað skyldi sameinað Kópavogshreppi og fengi nú nafnið Kópavogshérað. Aðrar hreytingar voru næsta lítilfjör- legar. Var lagt til að nokkrir hreppar og hreppslilutar væru færðir milli héraða. Héraðs- læknar fengu vitneskju um efni frumvarpsins, en fáir komu at- hugasemdum á framfæri. Fé- lagsstjórnin gerði litlar athuga- semdir við frumvarpið, en var liins vegar sannnála því sem landlæknir segir í greinargerð frumvarpsins, „að mjög megi deila um grundvöll íslenzkrar læknishéraðaskipunar.“ Eins og læknum mun kunn- ugt var Höfðahérað stofnað á síðasta alþingi og Egilsstaða- héraði skipt. Landlæknir mun ekki hafa verið meðmæltur skiptingunni. Samkvæmt heiðni nokkurra héraðslækna gerði stjórnin enn eina tilraun til þess að fá hér- aðslækna leysta undan þeirri kvöð að innheimta og greiða söluskatt af lyfjum. Var hent á að sumir skattheimtumenn hefðu verið í vafa um að lyfja- sala héraðslækna væri sölu- skattsskyld einkum þar sem lyfjasala væri litil eða innan við kr. 30.000 árlega. Margir læknar hefðu ]>ví látið lijá líða að innheimta skattinn, en síðan orðið að greiða hann úr eigin vasa. Úrskurður fjármálaráðu- neytisins var á þá leið að lyfja- sala heraðslækna jafnt smá sem stór væri söluskattsskyld. Samkvæmt heiðni eins svæðis- félags var spurst fyrir um það i dómsmálaráðuneytinu hvort héraðslæknar gætu ekki fengið leyfi til þess að hafa sírenur (þokulúðra) í hifreiðum sínum til ])ess að gefa hljóðmerki er mikið liggur við. Var talið, að læknar yrðu oft fyrir hagaleg- um töfum vegna þess að bif- reiðir væru oft að lóna á hin- um mjóu vegum og lcyfa ekki læknisbifreiðinni að komast á- fram eins fljótt og nauðsyn krefur og skeyta því engu þó að venjulegt hljóðmerki sé gefið. Ekki þótti ólíklegt að slíkt leyfi fengist en endanlegt svar er ókomið. Lög félagsins. Þau hafa nú verið sérprentuð og voru þau send læknum með fundarboð- inu. Læknablaðið. Það varð að samkomulagi að L. í. og L. R. gæfu Læknahlaðið út í félagi. Kemur þetta til framkvæmda í haust. Af hálfu L. R. hefir Rjarni Jónsson dr. med. verið kosinn i ritnefnd hlaðsins og liggur nú fyrir þessum fundi að velja annan lækni til þess starfa. Stjórnir heggja félag- anna ráða síðan aðalritstjóra hlaðsins. Skuldir hlaðsins munu hafa minnkað nokkuð og verður sá halli, er L. f. tók að

x

Læknablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.