Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 01.03.1955, Blaðsíða 15

Læknablaðið - 01.03.1955, Blaðsíða 15
LÆKNABLAÐIÐ 25 Samþykktir félagsins. 1) Domus medica. Esra Pét- ursson og Páll Kolka fluttu eft- irfarandi tillögu: „Kosin verði 3 manna nefnd til þess að atlmga möguleika á byggingu og um stærð, staðsetningu og fyrirkomu- lag á Donius medica. I öðru lagi, hvort heppilegra yrði að festa lieldur kaup á húsi í þessum tilgangi. Nefndin skili áliti á næsta aðalfundi.“ Tillagan var samþvkkt með 8 atkvæðum án mótatkvæða. f nefndina voru kosnir: Berg- sveinn Ólafsson, Esra Péturs- son og Jón Sigurðsson. 2) Taxti héraðslækna. Til- laga horin fram af Eggert Ein- arssyni, Kjartani Ólafssyni, Páli Kolka og Jóni Sigurðssyni: „Fundurinn samþykkir að kjósa nefnd þriggja héraðs- lækna, sem hann gefur fullt umhoð, til þess, í samráði við stjórn L. í„ að ganga frá samningum við heilbrigðis- stjórnina og Tryggingar- stofnun ríkisins um leiðrétt- ingu og samræmingu á taxta og vinnuskilvrðum liéraðs- lækna.“ Tillagan var samþykkt með 9 atkvæðum samhljóða. í nefndina voru síðan kosnir Eggert Einarsson, Bragi Ól- afsson og Ragnar Ásgeirsson. 3) Kjör sjúkrasamlagslækna utan Reykjavíkur. Jón Hj. Gunnlaugsson lagði fram eftir- farandi tillögu: „Aðalfundur L. í. 1954 á- lyktar að kjósa þriggja manna nefnd praktiserandi lækna utan Reykjavíkur, til þess að semja við Trygg- ingastofnun ríkisins um kaup og kjör sjúkrasamlags- lækna í kaupstöðum utan Reykjavíkur. Nefndin skal liafa samráð við stjórn L. í.“ Var tillagan samþykkt með þeirri breytingu að nefndar- menn skyldu vera fjórir. Þessir ldutu kosningu i nefndina: Bjarni Snæhjörnsson, Haukur Kristjánsson, Jón Gunnlaugs- son (Selfossi), og Kjartan Jó- hannsson. 4) Tryggingamál lækna. Samþykkt var að kjósa þriggja manna nefnd til að athuga og gera tillögur um tryggingamál lækna. Ivosningu hlutu í nefnd- ina: Ivristhjörn Tryggvason, Páll Ivolka og Valtýr Alberts- son. 5) Notkun deyfilyfja. Esra Pétursson og Alfreð Gíslason háru fram eftirfarandi tillögu: „Aðalfundur L. í„ haldinn á Akureyri 1954, ályktar að lcosin verði þriggja manna nefnd til þess að athuga möguleika á því, að unnt verði að draga sem mest úr notkun og misnotkun svefn-, deyfi- og nautnalyfja hjá al- menningi og lijá læknastétt- inni. Nefndin skili áliti sinu

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.