Læknablaðið - 01.03.1955, Side 20
30
LÆKNABLAÐIÐ
vinstri lungnavenur umluktar
tumorvef, sem veldur miklum
þrengslum í þeim.
Histologisk diagnosis: Car-
cinoma bronchiogenes, sem vex
inn í nágranna líffæri ösofag-
us, aorta, arteria og venae
pulmonales.
Discussion: Hypercyánotisk
angina, eða verkur í brjósti,
sem að líkindum orsakast af
hækkuðum þrýstingi í lungna-
hringrásinni, er tiltölulega
sjaldgæft fyrirbrigði. Kemur
verkurinn í köstum, geislar frá
praécordium djúpt inn í brjóst-
ið, stundum dálílið upp á við,
samfara þessu er aukin cj'an-
osis, þrýstingur fyrir brjósti
(oppression), almennt magn-
leysi, og kvíðatilfinning. Mæði
er lítið áberandi, og það sést
ekki sú dauðans angist (angor
mortis), sem stundum kemur
við angina jjectoris. Af ofan-
skráðu er því augljóst, að erf-
itt er að greina verkjaköst þessi
frá venjulegum angina pector-
is-verkjum. Þetta mun þó í
flestum tilfellum hægt, ef höfð
eru i huga anamnestisk og kli-
nisk einkenni, sem benda til
aukins þrýstings í lungnahring-
rásinni.
Ber þar til að nefna1) alla
langvinna lungnasjúkdóma,
sem að jafnaði valda cor pul-
monale chronicum,2) emboli-
ur i arteria pulmonalis,3) sten-
osis mitralis,4) þá meðfædda
hjartasjúkdóma, sem valda
blóðþrýstingshækkun í lungna-
liringrásinni. Samkvæmt Viar
og Harrison0) hafa sjúklingar
með gat í septum atriorum,
með opinn ductus arteriosus og
með Eisenmengers Complex
(dextroposition af aorta, gat
í septum ventriculorum og hyp-
ertrofi á hægri venti-iculus),
fengið hypercyanotisk angina
köst, enda er blóðsókn aukin
til lungnanna við þessa með-
fæddu lijartagalla.
Hjá sjúklingum með Fallots
Tetrologi kemur þetta syndrom
ekki fram, enda hafa þeir
fjórða meðfædda gallann fram
yfir Eisenmengers complexið,
sem sé pulmonalstenosis, en
hún veldur því, að blóðrennsli
til lungnanna minnkar, og þess
vegna er lágur þrýstingur í
arteria pulmonalis.
Hjá sjúklingi mínum hefir
vafalaust verið um að ræða
mikla hækkun á blóðþrýstingi
í lungnahringrásinni, þar sem
þrengsli voru bæði í vinstri
arteria og vinstri venae pul-
monales. Auk þess voru
þrengsli í arcus aortae, og er
líklegt að þar sé að finna or-
sökina fyrir hypertrofi á
vinstri ventriculus. Þar að auki
var allt vinstra lunga saman-
þjappað og loftlaust, sem hefir
i för með sér enn meiri þrýst-
ingshækkun í lungnahringrás-
inni.
Til aðgreiningar á verk við
hypercyanotisk angina frá an-