Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 01.06.1957, Page 10

Læknablaðið - 01.06.1957, Page 10
36 LÆKNABLAÐIÐ lengri eða skemmri tíma liSnum veldur truflunum á lífrænum skiptum í einstökum líffæra- kerfum eða líkamanum sem heild. Hér mun ekki reynt að fara nánar út í reikning þann, er sýnir breytingu geislaorkunnar í efnisorku, né heldur mæling- araðferðir, heldur skal einungis drepið á grundvallaratriði geislaeðlisfræðinnar að svo miklu leyti, er þáu varða eftir- farandi mál. Geislunarmagn er mælt í rönt- geneiningum: eitt r hefir verið ákvarðað það magn, sem svar- ar til ca 2 billjóna rafvirkra jónasamstæðna á hvern rúm- sentimetra lofts. — Telji mað- ur nú að frumur líkamans séu frá 10-7 mm3 upp í 10-5 mm3 að stærð, þá táknar þetta, að hvert r, sem nær að síast inn í líkamsfrumu, veldur þar frá 200 upp í 20000 jónunum, auk hugsanlegra eftirfarandi keðju- áhrifa! Geislavirkir ísótópar (sam- sætur) eru mældir i curie-ein- ingum: eitt millicurie táknar þannig, að í efninu verða 3.7X 107 jónanir á sekúndu, en það er jafnmikið og geislunaráhrif- in frá milligrammi af radíum á sama tíma. Geislun sú, er liér um ræðir, getur verið a) rafbylgjugeislun: rön tgengeislar; gammageislar; 1») efnisgeislun: elektron- eða neutrongeislar. Röntgengeislar eru sama eðlis og ljósgeislar, aðeins er bylgjutíðni þeirra á- kaflega miklu skemmri. Eðli þeirra, að síast gegnum fasta hluti, „smygi“ (penetratio), eða harka, eykst með hækkandi spennu í orkugjafa þeim, er framleiðir þá. Þannig þarf við 45 kílóvolta spennu í orkugjaf- anum 0.5 mm þykka blýþynnu til þess að verjast þeirri geislun í eins metra fjarlægð frá geisla- lindinni, sem til lengdar væri hættuleg. Við 85 kílóvolta spennu þarf tilsvarandi blý- þynna að vera 2 mm að þykkt o. s. frv. — Til gamans má geta þess, að 2 mm blýþynna svarar í þessu sambandi til ca 2 metra þvkks viðarbols eða 13 cm þykks steinsteypuveggj ar. Efni, sem verður fvrir rönt- gengeislun, sendir aftur frá sér röntgengeisla, sem hafa minni orku, en að öðru leyti nákvæm- lega sömu eiginleika. Þannig getur sjúldingur verið talsvert geislavirkur eftir röntgenrann- sókn, er útlieimt hefir margar „exponeringar“ eða eftir meðal- langa gegnlýsingu. Auk þess myndast í geisluðu efni elektr- ongeislar, sem geta haldizt á- fram um nokkurn tíma í líf- rænum vef, eftir að frumgeisl- inn liefir verið numinn burtu. Gamma-geislar eru sama eðl- is og röntgengeislar og eru að- alstofninn í geislunum frá radí- um og geislavirkum samsætum (isótópum). „Smygi“ þeirra frá

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.