Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 01.06.1957, Blaðsíða 17

Læknablaðið - 01.06.1957, Blaðsíða 17
LÆKNABLAÐIÐ 43 læknaliúsi, eignaðist fundarsal, bókalierbergi, lesstofu og eld- liús fyrir minniháttar veitingar, en með því voru taldir skapast möguleikar til að leigja salinn út, er læknafélögin þyrftu ekki á honum að halda, og talið sennilegt að hann gæti staðið undir sér með þessum hætti. Þá fréttist að allmargir lækn- ar væru með ráðagerðir um að kaupa húsnæði fyrir lækninga- stofur sínar. Hófust þá viðræð- ur við þá um að sameinast L.I. um byggingu stærra húss og um sama leyti var einnig rætt við Læknafélag Revkjavíkur um að gerast aðili að málinu. Það varð úr, að háðir þessir aðilar á- kváðu að taka upp samvinnu við L.I. um byggingu lækna- Iiúss. Möguleikar til fjáröflunar Iiafa verið athugaðar eftir föng- um. Fyrst kom þar til greina handbært fé lælcnafélaganna 100.000.00 kr. frá hvoru þeirra. Þá framlag þeirra lækna, sem mundu setjast að í húsinu, en þeir skuldhundu sig til að leggja fram 100.000.00 kr. hver, 20 að tölu eða jafnvel fleiri. Leitað var til Trvggingastofn- unar ríkisins um lán og henda líkur til að hún verði við þeirri málaleitan. Einnig mun trygg- ingasjóður lækna lána allveru- legt fé. Lyfsali í Reykjavík vill hyggja kjallara og fyrstu liæð liússins gegn því að liann fái þar aðsetur fyrir lvfjabúð sína og annan rekstur, en byggingar- kostnaðurinn skoðist sem liúsa- leiga, greidd fyrirfram. Rætt liefur verið við ýmsa fleiri, sem einnig hafa áhuga fyrir að trvggja sér verzlunar- húsnæði á 1. hæð hússins, á sama hátt og lyfsalinn. Jafnvel yrði hægt að byggja fleiri hæðir í liúsinu á þennan hátt. Loks var samþykkt að leita til allra lækna landsins um fjárframlög. Þann 11. maí 1956 sendu for- menn læknafélaganna og for- maður bvggingarnefndar um- sókn um bvggingalóð, til Reykjavíkurbæjar. Hún er við Miklatorg, á milli Reykja- neshrautar og Mikluhrautar. Staðurinn liggur vel við strætis- vagnaleiðum úr öllum hlutum bæjarins. Lóðin er geysistór, enda þörf fyrir fjölmörg bif- reiðarstæði. Veiting fékkst fyrir lóðinni á hæjarráðsfundi 28. júní. Við liöfum þegar fengið frum- teikningu að liúsi, hjá húsa- meistara í skipulagi bæjarins, sem hann telur að væri staðn- um samboðið. Rygging þessi er 7 hæða, 600 fermetrar að flat- armáli, auk samkomuhúss læknafélaganna, sem liann lmgsar sér sem útbvggingu úr aðalhúsinu. Það hefur verið rætt all mik- ið við innflutningsnefnd um fjárfestingarleyfi fyrir húsinu. Umsókn var send henni um miðjan maí 1956 ásamt ýtarlegri

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.