Læknablaðið - 01.07.1957, Blaðsíða 12
50
LÆKNABLAÐIÐ
influenzu er orðið tiltölulega
auðvelt að greina og að rann-
sóknastofuaðferðir til þess eru
fremur einfaldar og áreiðanleg-
ar. Alþjóðasamvinna um influ-
enzu-rannsóknir, sem Heilbrigð-
isstofnun Sameinuðu þjóðanna
hefur gengizt fyrir undanfarin
7 ár, hefur þegar fært ákaflega
mikilvægar upplýsingar um
sóttarfar influenzu. Þótt þær
rannsóknir hafi sjaldnast kom-
ið influenzusjúklingum eða
læknum, sem þá liafa stundað,
að haldi hafa þær þó eigi að sið-
ur verið mjög mikilvægar og
gagnlegar. Má segja, að nú sé
farið að grilla í undirstöðuat-
riði sóttarfars influenzu vegna
þessara rannsókna.
Annar sjúkdómur í öndunar-
færum, sem aðstoða má við
greiningu á, er „atypisk“ eða
„vírus pneumonia“.
Agglutinationspróf með rauð-
um hlóðkornum eða sérstakri
tegund keðjusýkla koma að
haldi við sumar tegundir veiru-
lungnahólgu. Þessar rannsóknir
hafa verið gerðar hér á landi
nokkur undanfarhi ár, og hafa
stundum komið að haldi.
1 þriðja lagi er psittacosis.
Nær alls staðar þar sem leitað
hefur verið að psittacosis sýk-
ingum eða ornithosis, sem
stundum er kallað nú orðið, hef-
ur fundizt talsverður slæðingur
af þeim hæði frá psittacin fugl-
um en einnig frá öðrum fugla-
tegundum. Hér á landi væri
nauðsvnlegt að geta greint
psittacosis í fólki, einkum þeg-
ar nú hefur verið aflétt banni
við fýlungatekju. Má vænta þess
að eitthvað af fólki taki psitta-
cosis á næstu árum, þótt ekki
ætti það að þurfa að verða
hættulegt, ef greining og með-
ferð verður í góðu lagi.
„Q fever“ er fjórði öndunar-
færasj úkdómurinn, sem aðstoða
má við greiningu á. „Q fever“
er allúthreiddur i ýmsum ná-
grannalöndum okkar, þó ekki á
Norðurlöndum. Þar sem hann
er á annað horð, finnst liann
venjulega í fólki, sem hirðir
sauðfénað eða nautpening eða
fæst við slátrun þeirra, enda
finnast veirurnar í líffærum
þessa húpenings. Ef til vill er
fremur ólíklegt að „Q fever“
komi fyrir liér á landi, en þó
væri sjálfsagt að hafa gætur á
því, ef hér yrði tekin upp rann-
sóknastofugreining á veirusjúk-
dómum.
I fimmta og siðasta lagi eru
svokallaðar APC veirur. Þær
valda allþungri augnhimnu-
hólgu, kverkabólgu og sennilega
katarrh og bólgu neðar í önd-
unarfærum. Þessar veirur virð-
ast vera mjög útbreiddar og
sums staðar valda þær slæmum
faröldrum einkum í hörnum og
unglingum og vekja þá augn-
himnuhólgufaraldrarnir sér-
staka eftirtekt. Slíkir faraldrar
hafa komið fyrir víða t. d. í
Bandaríkj unum og Svíþjóð. Að