Læknablaðið - 01.07.1957, Side 15
LÆKNABLAÐIÐ
53
undanfarin ár. Nú er rætt um
að hún geti ef til vill tekið að
sér að verða miðstöð fvrir aðr-
ar veirur, sem finnast í öndun-
arfærum. Mætti þá senda víðs
vegar að veirustofna, sem fund-
izt liafa i öndunarfærum, og fá
lijálp miðstöðvarinnar til að
ganga frá fullri greiningu.
Einnig hefur verið rætt um
að rannsóknastofa prófessors P.
Lépine á Pasteur stofnuninni í
París taki að sér svipað hlut-
verk hvað snertir mænusóttar-
veirur og ef til vill aðrar veirur,
sem valda sjúkdómum i mið-
taugakerfi. Ef þetta kæmist í
fulla framkvæmd yrði það mik-
ill stuðningur fvrir minni rann-
sóknastofur, sem hæta vilja
greininguna hver á sínu sviði.
Lögð var mikil álierzla á nauð-
svn þess, að læknar, sem stunda
kliniska vinnu og rannsókna-
læknar, sem fást við greiningu
veirusjúkdóma, liafi með sér
samvinnu. Mundi það annars
vegar leiða til þess að læknar,
sem kliniska vinnu stuuda, ættu
aðgang að sérfræðingum um
veiru-infektionir og gætu leitað
ráða hjá þeim. Einnig mundi
slík samvinna liafa þann kost
fyrir rannsóknalæknana, að
þeir fylgdust þá betur með
livaða sjúkdómar eru á ferðinni
á hverju svæði fyrir sig á hverj-
um tíma og einnig mundi hún
trvggja, að þau sýnisliorn, sem
þeir fá til rannsóknar væru
skvnsamlega og lieppilega valin.
Annars hefur oft viljað brenna
við, að læknar liafa sent sj'nis-
horn, sem gagnslaust er að
leggja mikla vinnu í að rann-
saka, vegna þess að þau eru illa
valin eða óheppilega geymd.
Það var mál allra að þar sem
slík samvinna er komin á og
starf rannsóknastofunnar kom-
ið i þokkalegt liorf sé hið mesta
gagn af þessari þjónustu.
Heilbrigðisstofnunin og allir
þátttakendur höfðu mikinn á-
liuga á, að öll lönd reyndu að
bæta greiningu á vírussj úlcdóm-
um hvért lijá sér hið allra fyrsta
og eftir því sem frekast eru
föng á.
Yafalaust er aðkallandi að
hæta þessa þjónustu hér ó landi
og að sumu leyti væri það sér-
lega fróðlegl hér, vegna þess að
sóttafar ýmissa veiruinfektiona
er liér sennilega nokkuð frá-
brugðið því, sem er í stærri,
fjölmennari og þétthýlli lönd-
um.
Undanfarin ár hafa nokkrum
sinnum komið upp sjúkdómar
hér á landi, sem fróðlegt hefði
verið að rannsaka eða rannsaka
hetur en gert var.