Læknablaðið - 01.07.1957, Qupperneq 18
56
lÆKNABLAÐIÐ
geta valdið alimörgum sjúk-
dómsmyndum í mönnum, og
má þar nefna meningitis ser-
osa, pleurodynia, herpangina,
svokallaða summer-gripp, sem
líkist influenzu, og tliree-day-
fever, sem einkennist af háum
hita, miklum höfuðverk og
myalgia.
Meðgöngutimi (incubation)
coxsackie sjúkdóma er 2—10
dagar, venjulega þrír til fimm
dagar.
Stundum fær sami sjúkling-
ur tvær eða fleiri af þessum
coxsackie sjúkdómsmyndum
samtímis. Þannig fara t. d.
stundum saman coxsackie me-
ningitis og pleurodynia. Þetta
mun þó fremur sjaldgæft.
Aðaleinkenni við coxsackie
sjúkdóma eru þessi:
Vei'kir og stirðleiki í vöðv-
um, sem eru mjög algengir, og
geta verið í höfði, hálsi, hol eða
útlimum, ýmist á takmörkuðu
svæði eins og t. d. í pleurodynia
eða sem alls herjar heinverkir.
Hiti er eitt helzta einkennið,
venjulega ekki mjög hár og
stendur fáa daga.
Oft fvlgja særindi i hálsi og
stundum herpangina.
Þá er meningitis serosa al-
geng sjúkdómsmynd.
Paresis á vöðvum af völdum
coxsackie veira liefur verið lýst
í nokkrum sjúklingum. Þessar
lamanir hafa venjulega ekki
verið útbreiddar, eða valdið
mikilli starfstruflun, og ólik-
legt er talið, að coxsackie veir-
ur geti valdið útbreiddum
mænulömunum (lower motor
neuron paralj7sis).
Ekki hefur verið gengið úr
skugga um, hvort þær sjúklegu
vefjahreytingar, sem lágu að
haki þessum ílömunum, væru
myositis, neuritis eða myelitis.
Enn fremui' er erfitt að útiloka,
að mænusótlar- og coxsackie-
veirur hafi farið saman i þess-
um tilfellum, því að þessar
veirur Iiafa stundum fundizl
samtímis hjá sama sjúklingi.
Ég ætla ekki að lýsa nánar
einstökum sj úkdómsmyndum
af völdum coxsackie-veira,
heldur aðeins coxsackie-men-
ingitis.
Kliniskt er ekki hægt að
greina coxsackie-meningitis
frá mænusótt án lömunar eða
meningitis serosa primaria af
öðrum orsökum. Sumir cox-
sackie-sjúklingar eru lítið veik-
ir, liafa hita, höfuðverk og
uppköst, eru ef til vill drunga-
legir, en ekki linakkastífir.
Þetta er sama sjúkdómsmvnd-
in og poliomyelitis aparalytica
án meningitis einkenna (ahor-
tiva formið). Hinn eiginlegi
coxackie-meningitis líkist hins
vegar nákvæmlega poliomyel-
itis aparalytica með menin-
gilis einkennum.
3. Echo-meningitis. Echo-
veirur er stytting úr enteric
cvlopathogen human orphan
veii'ur.