Læknablaðið - 01.07.1957, Qupperneq 21
LÆKNABLAÐIÐ
59
blóð, geta borið veikina til
manna. Smitið berst sennilega
ekki oft frá manni til manns,
en þó hefnr það fundizt í nef-
koki og þvagi manna.
Flest sjúkdómstilfelli má
rekja til snertingar við mýs, og
veikin er algengust meðal
fólks, er vinnur á rannsókna-
stofum. Smitið berst með
þvagi og ef til vill saur mús-
anna.
Eitt dæmi er nefnt, þar sem
sterkur grunur er um, að smit
hafi borizt frá móður til barns
gegnum placenta, en annar
möguleiki er sá, að barnið hafi
smitast af þvagi móðurinnar í
fæðingunni.
Þessar veirur geta valdið
hreinum meningitis, en einnig
encephalomyelitis. Tveggja
dauðsfalla er getið af völdum
sjúkdómsins.
5. Herpes simplex veirur geta
valdið meningitis serosa, en
þær geta líka valdið heiftar-
legum encephalitis og enceph-
alomyelitis, þótt ekki séu mörg
skráð dauðsföll.
Þessar veirur eru sjaldgæf
orsök til meningitis serosa.
Stundum fvlgja herpes ein-
kenni á liúð, en þau fundust
t. d. ekki í þeim dauðsföllum,
sem skráð eru af völdum herp-
es encephalitis.
Það verður að liafa í huga,
að herpes veirur eru mjög út-
breiddar, og dulinn herpes
blossar oft upp í sambandi við
bráða sjúkdóma, t. d. lungna-
bólgu. Það er þvi engan veg-
inn öruggt, að meningitis stafi
af lierpes veirum, þótt sjúkl-
ingar fái herpes einlcenni á húð
samfara meningitis sei'osa.
6. APC-veirur. APC-veirur
er skammstöfun á adenoid-
pharyngeal-conjunctival veir-
ur. Þær fundust árið 1953, og
nú hafa fundizt á annað hundr-
að stofnar víða um heim. Flest-
ir hafa fundizt í koki og con-
junctiva, en 13 í saur. Með
neutraliserandi mótefnum er
nú hægt að aðgreina 17 teg-
undir af APC-veirum, en com-
plement bindandi mótefni eru
sameiginleg fyrir allan flokk-
inn.
APC-veirur valda sjúklegum
breytingum á heilbrigðum
þekjufrumum úr manni, HeLa
frumum( sem eru illkynja
þekjufrumur, cervix-carcino-
ma, sem Gey tók úr konu 1951
og síðan hafa vaxið in vitro
og verið sendar víða um heim),
apanýrnafrumum og barka-
þekju úr kanínum.
Ekki hefur enn tekizt að
rækta þessar veirur í tilrauna-
dýrum eða hænueggjum, en
hins vegar hefur tekizt að sýkja
menn með þeim í tilranna-
skvni.
APC-veirur geta valdið ýms-
um sjúkdómum, eru t. d. al-
geng orsök kvefs og pharyngit-
is, og geta auk þess valdið me-
ningitis og lungnabólgu.