Læknablaðið - 01.07.1957, Page 24
62
LÆKNABLAÐIÐ
fæti, sem batnaði á tveim dög-
um.
Enginn hafði skyntiuflanir,
vöðvaeymsli, reflex truflanir,
lcrampa eða tremor. Enginn
fékk óráð.
Atján höfðu léttan roða á
gómbogum og 5 microadenitis
á hálsi.
Rannsóknir: Frumufjölgun
var í mænuvökva allra sjúkl-
inga. Tíu sjúkl. höfðu frá 11
—100 frumur í hverjum mms,
10 höfðu frá 101—500, og 9
sjúkl. þar yfir.
Einkjarna frumur voru í yf-
irgnæfandi meirihluta í mænu-
vökva allra sjúkl. nema eins,
sem hafði einkjarna frurnur
aðeins að Ys liluta.
Albumen og globulin var
mælt í mænuvökva 20 sjúkl.
Var hvort tveggja eðlilegt i 8
þeirra, en lílillega hækkað i 12.
Sykur var eðlilegur.
Engar bakteríur fundust í
mænuvökva við smásjárskoð-
un eða ræktun.
Af öðrum rannsóknum má
nefna, að sökk var mæll í 23
sjúkl. Reyndist það eðlilegt í
0, frá 11—20 mm í 11 sjúkl. og
frá 21—38 mm í 6 sjúkl. Sökk-
ið lækkaði aftur eftir fáeina
daga.
Hvít blóðkorn voru yfir 7
þús. í rúmmm. blóðs í 10
sjúld., en aðeins í þremur yfir
10 þús.
Ekki hef ég getað fundið
samband milli frumufjölda í
mænuvökva og sökkhækkunar
og leucocjdosis i blóði.
Þeir, sem fæstar frumur
höfðu i mænuvökva, fengu hins
vegar vfirleitt lægri hita og
vægari einkenni en hinir. Þeir,
sem unnu veikir og sló niður,
böfðu allir mikla frumuaukn-
ingu í mænuvökva og hitinn
stóð áberandi lengur hjá þeim
en hinum, og komst hærra.
Þeir urðu veikari en aðrir.
Meðferð var einkum fólgin í
rúmlegu, og var sjúkl. haldið
í rúminu í rúma viku, eftir að
þeir urðu hitalausir.
Þeir 8 sjúkl., sem komu í
spítalann, eftir að þeim liafði
slegið niður, höfðu farið að
vinna, eða reyna á sig, strax og
þeir urðu hitalausir. Þeir urðu
veikari en hinir, og voru leng-
ur að ná sér.
Horfnr: Engin dauðsföll urðu
meðal þessara sjúkl. Bati skjót-
ur og engin varanleg eftirköst
svo vitað sé. Þó mun eitthvað
hafa borið á þreytu, slappleika
og höfuðverk í sumum sjúkl. í
nokkurn tíma á eftir. Mun slíkt
algengara, ef sjúkl. fara illa
með sig.
Niðnrstaða: Enginn vafi er á
því, að hér hefur verið á ferð-
inni faraldur af meningitis
serosa.
Þótt ekki hefðu nema 29
sjúklingar breytingar í mænu-
vökva, einkennandi fyrir men-
ingitis serosa, komu einnig 5
sjúkl. í spítalann með menin-