Bændablaðið - 04.07.2013, Blaðsíða 38
38 Bændablaðið | Fimmtudagur 4. júlí 2013
Hrútavinafélagið Örvar heldur 100 ára afmælishátíð á Eyrarbakka á laugardaginn til heiðurs stofnandanum:
Selur inn á afmæli forsetans til styrktar menningunni
Það verður vegleg veisla
laugardagskvöldið 6. júlí í
Félagsheimilinu Stað á Eyrar-
bakka sem menningaráð
Hrútavinafélagsins Örvars stendur
fyrir. Kalla Hrútavinir þetta 100
ára afmæli en sú tala er fengin
með smá reikningskúnstum sem
hvaða útrásarvíkingur sem er
gæti verið fullsæmdur af. Tilefnið
er að menningarvitinn og forseti
félagsins, Björn Ingi Bjarnason á
Eyrarbakka, fyllir 60 lífárin hinn
7. júlí næstkomandi. Að auki hefur
hann verið í félagsmálaforystu í 40
ár. Samtals gera þetta 100 ár.
Selt inn á afmælið!
Hrútavinir hafa margoft verið í fréttum á
síðum Bændablaðsins fyrir margvísleg
uppátæki. Nú skal halda veislu í
Félagsheimilinu Stað á Eyrarbakka
með mjög þjóðlegum hætti. Þar verður
þessum tveim áföngum fagnað í tali og
tónum. Skemmtunin byrjar klukkan
átta. Á borðum verður rammíslensk
kjötsúpa með öllu tilheyrandi að hætti
Hrútavina, ásamt límonaði og lageröli.
Fram koma m.a. hljómsveitirnar Æfing
og Siggi Björns frá Flateyri, Granít frá
Vík í Mýrdal og Kiriyama Family frá
Eyrarbakka, Stokkseyri og Selfossi.
Á eftir verða svo tónleikar með
hljómsveitinni Granít sem á fagmáli
kallast flöskuball sem standa mun
fram á nótt. Þangað verður hver og
einn að koma með sína vökvun eins
og félagarnir orða það og síðast en
ekki síst verða vinir sigtaðir frá
viðhlæjendum með því að hafa 2.500
króna aðgangseyri. Rennur hann af
einstakri góðmennsku óskiptur til
styrktar þessum menningarviðburði.
Veislustjórar verða Guðmundur Jón
Sigurðsson og Hendrik Tausen, sem
átt hafa margþætta félagsmálasamleið
með afmælisbarninu í þessi 40
félagsmálaár.
Toppurinn á ferlinum
Björn Ingi starfaði fyrst að
félagsmálum á Flateyri á sinni gömlu
heimaslóð til 1984, síðan í Hafnarfirði
og svo í þorpunum Stokkseyri og
Eyrarbakka og víðar á Suðurlandi
frá 1999. Toppurinn á félagsmálaferli
Björns Inga hlýtur þó að teljast
Hrútavinafélagið Örvar á Suðurlandi.
Félagið var stofnað 1999 og hefur
hann verið forseti þess frá upphafi.
Félagsmenn segja Björn eitt helsta
félagsmálatröll Suðurlands enda þurfi
meira en meðalmann til að veita forystu
hinu margundarlega en áhrifamikla
Hrútavinafélagi. Hann féllst á það með
miklum eftirgangsmunum og semingi
að veita Bændablaðinu örstutt viðtal
um ferilinn.
Byrjaði hjá Gretti
„Ég byrjaði félagsmálavafstrið í
Íþróttafélaginu Gretti á Flateyri undir
öruggri handleiðslu félagsmála-
leiðtogans Hendriks Tausen og tók
við formennsku af honum 1974. Í
framhaldi af því fylgdi ég honum yfir
í Verkalýðsfélagið Skjöld, þar sem ég
byrjaði í stjórn 1977. Formaður varð
ég þar 1981 og gegndi þeirri stöðu til
ársins 1985.“
Lengsta samfellda félagsmála-
vertíð Björns er forysta hans í
Önfirðingafélaginu, sem er félag
brottfluttra Önfirðinga. Í 20 ár var
hann formaður félagsins, en það voru
gerðir alveg hreint ótrúlegir hlutir á
þessum árum.
„Ég lét af formennsku í Önfirðinga-
félaginu á árslok 2012 og vil þakka
sérstaklega félögum og samstarfsfólki
fyrir þennan skemmtilega tíma.“
Samið um vörslu orlofsfjár
„Stærsti atburðurinn á mínum ferli í
verkalýðsfélaginu er samningurinn um
að orlofsfé launafólks á Flateyri yrði
greitt inn á reikninga þess í Sparisjóði
Önundarfjarðar og því ávaxtast í
heimabyggð í stað þess að geymast
vaxtalítið hjá Póstgíróstofunni eins og
verið hafði.
Þetta var gömul hugmynd frá
stjórnarárum Hendriks en hafði ekki
komist í framkvæmt. Það var ekki
einfalt að landa þessu. Atvinnurekendur
á staðnum, sem og sparisjóðurinn, voru
undir gríðarlega miklum þrýstingi að
sunnan um að gefa sig ekki. Þarna
sýndi Einar Oddur Kristjánsson þann
kjark sem til þurfti og hann taldi
skynsamlegast fyrir fólkið, fyrirtækið
og byggðina. Það var þessi kjarkur
sem gerði þjóðarsáttarsamningana að
veruleika. Hann bugaðist ekki undan
pressu valdamikilla aðila.
Ægir E. Hafberg sparisjóðsstjóri,
sem nú stýrir Landsbankanum í
Þorlákshöfn, lét bankakerfið heldur
ekki buga sig þrátt fyrir mikla pressu.
Það er stærsta og sælasta stund
félagsmálalífs míns þegar skrifað var
undir þennan samning í stofunni heima
hjá Ægi Hafberg sparisjóðsstjóra. Í
fyrstu var Hjálmur hf. eina fyrirtækið,
enda stærsta og öflugasta fyrirtæki
staðarins, en hin komu öll á eftir
þannig að þetta baráttumál félagsins
fékk farsælan endi.“
Uppalinn á Flateyri
Björn Ingi er fæddur á Sjúkraskýinu
á Flateyri og uppalinn í þorpinu þar
sem lífið snerist öðru fremur um hafið,
fjöruna og fjöllin. Hann er kvæntur
Jónu Guðrúnu Haraldsdóttur. Börnin
þeirra heita Júlía Bjarney fædd 1979,
Inga Rún fædd 1980 og Víðir fæddur
1988.
Ofdekraður frá fyrsta degi
„Það var gott að alast upp á Flateyri,
þar var ég ofdekraður strax frá fyrsta
degi, sérstaklega af konum. Evrópskar
rannsóknir hafa sýnt að eitt það
versta sem karlar lenda í er að vera
ofdekraðir af konum. En ég mótmæli
því harðlega.
Móðir mín var komin yfir fertugt
þegar ég fæddist og leit á mig sem
einstakan gullmola og happafeng
og ég var meðhöndlaður eftir því.
Hulda systir var komin yfir tvítugt
þegar ég kom í heiminn og auðvitað
var ég dekraður af henni líka. Í næsta
húsi bjó Lilja Guðmundsdóttir, sem
ævinlega var kölluð Lilja skó eftir iðn
föður síns. Hún var mér sem önnur
móðir og dekraði mig ekki minna en
hinar tvær.
Og þetta er bara fyrsti kaflinn í
ofdekri kvenna. Næsti kafli kvenlegs
ofdekurs tók við þegar við Jóna
Guðrún byrjuðum að vera saman. Þá
bættust hún og tengdamamma við
með enn meira dekur. Gróa Björns
er enginn venjulegur dekrari, þar er
sko hreint ofdekur.
Og nú síðast eru dæturnar farnar
að dekra við mig þannig að það er
ekki gott að segja hvar þetta endar
en ég kann þessu vel og nýt fram í
fingurgóma beggja handa,“ segir
Björn.
Kveikt í fjalli
Flateyri fyrri ára var heill
ævintýraheimur fyrir unga drengi
sem margt þurftu að prófa, bátar og
bryggjur, fjörurnar og heillandi hafið.
Það var gnótt tækifæri fyrir drengi að
fá hugmyndaflugi sínu útrás og furðu
fátt sem var bannað.
„Fjaran og hlíðin voru mitt svæði
þegar ég var barn. Við púkarnir
dunduðum okkur heilu sumrin við að
hlaða kofa úr grjóti og torfi í hlíðinni
ofan við Ástarbrautina sem nú er
horfin undir varnargarða. Ég var vel
búinn í ferðalög mjög snemma því
Lilja skó gaf mér reiðhjól strax þegar
ég varð sex ára. Eftir það passaði hún
vel upp á að ég væri vel settur með
farskjóta. Síðasta hjólið gaf hún mér í
fermingargjöf, dýrindis BSA-hjól sem
var glansandi flott og bar af öðrum
hjólum á eyrinni enda bónað og þrifið
reglulega.
Sinubrunar voru líka heillandi,
þá var alsiða að kveikja í sinu um
allt. Siggi Björns alheimstrúbador
var heimagangur hjá okkur á
Ránargötunni og við brölluðum
ýmislegt. Við náðum til dæmis áður
óþekktum afköstum við að kveikja
í sinu. Við bundum gott band í
strigapoka með einhverju eldfimu í,
svo var kveikt í pokanum og hlaupið
um hlíðina, það urðu mjög virðulegir
sinubrunar úr þessu hjá okkur. Það
bókstaflega brann allt fjallið. En við
gættum þess að brenna bara á vorin
á meðan það var leyfilegt.“
Fleiri konur
Björn Ingi byrjaði ungur að vinna
og þrátt fyrir að hugurinn stæði til
skipstjórnar þegar hann var lítill lá
leiðin fyrst í frystihúsið, þar sem hann
steig sín fyrstu atvinnuspor. Þar komst
hann enn og aftur í kvenlegt dekur þar
sem hann keyrði á borðin sem kallað
var. Þá var bökkum með fiski raðað á
trillu sem færði fiskinn til kvennanna í
salnum sem snyrtu og pökkuðu.
„Ég náði góðu sambandi við
konurnar, þær voru skemmtilegar og
með góðan húmor. Þær fyrirgáfu mér
líka með brosi á vör í hvert skipti sem
ég keyrði með trillunni á fætur þeirra.
Skömmuðust aldrei þó að þetta væri
greinilega mjög vont.
Sumarið sem ég varð 15 ára fór ég
á skak með Leifi Björnssyni og Helga
Sigurðssyni á Þorsteini NK 79. Þar
tapaði ég fullkomlega öllum áhuga á
sjómennsku, var drullusjóveikur og
leist ekkert á þetta. Síðan hef ég verið
í landi fyrir utan eitt sumar í útgerð
með Friðriki Hafberg og Þorsteini
Guðbjartssyni og skamman tíma á
Gylli eftir að hann kom. Beitningin
varð mitt starf, fyrst sumarvinna
með skóla og svo fullt starf í nær
hálfan annan áratug. Var um tíma við
hagræðingarráðgjöf á vegum ASV
og ASÍ.“
Fjölskyldan flytur
„Sumarið 1984 fluttum við suður þar
sem ég fór í Fiskvinnsluskólann. Eftir
að skólanum lauk fór ég til starfa hjá
Vinnumálasambandi samvinnufélaga
og síðan SÍF, Sölusambandi íslenskra
fiskframleiðanda. Þar var miðstöð
allrar saltfisksölu úr landinu ásamt
öflugri tilraunavinnslu til að bæta
vinnsluna og auka fjölbreytni.“
Þar kom að Björn stofnaði sitt
eigið fyrirtæki sem hann rak með
miklum brag ásamt félaga sínum
Einari S. Einarssyni í 20 ár.
Hólmaröst ehf. starfaði fyrst í
Reykjavík, en fyrirtækið sérhæfði sig
í kolavinnslu fyrir Hollandsmarkað
ásamt því að vinna hefðbundinn
saltfisk. Vörur þeirra félaga fengu
góðar móttökur á mörkuðum ytra og
reksturinn gekk vel.
Við byrjuðum á Grandanum
1988 en fluttum okkur á Stokkseyri
1999, þar var ónotað stórt og mikið
frystihús sem við náðum okkur í. Þar
var fyrirtækið til ársins 2007, nú er þar
orðin menningarverstöð og vinnslan
okkar löngu komin á skrá sögunnar.
Þegar mest var umleikis hjá okkur
vorum við með 120 manns í vinnu
þannig að við þurftum töluvert hráefni.
Það kom að því að ekki var lengur
hægt að treysta á hráefni og því var
þetta sjálfhætt. Ég sneri mér að allt
öðru og hef verið fangavörður á Litla-
Hrauni frá árinu 2007.“
Rokkað á Sólbakka
„Uppáhaldið nú síðustu ár hefur
verið hin öfluga tónlistartenging sem
Sólbakkasetrið stóð fyrir í samstarfi
við Önund Pálsson í Tankanum, sem
var frumlegasta hljóðver á landinu.
Þetta leiddi af sér plötuútgáfu þriggja
hljómsveita. Það eru Granít, Kiriyma
Family og nú síðast en ekki síst Æfing,
sem sló í plötu á 45 ára afmæli bandsins.
Það verður hlutverk allra Önfirðinga
að koma sem flestum lögum Æfingar
á vinsældalista. Lögin eru öll sögur
að vestan og kveikja minningar og á
stundum jafnvel söknuð. Allar hafa
þessar hljómsveitir haldið tónleika og
skemmtanir fyrir vestan í tengslum
við útgáfuna. Nú síðast Æfing, sem
hélt heila hvítasunnugleði nú í vor þar
sem fjöldi brottfluttra Önfirðinga kom
að upplifa.“
Elliheimilisbjarmi
Björn Ingi horfir björtum augum til
framtíðarinnar og telur engu að kvíða
þó að aldurinn sæki hraðar á en áður,
og af fasi hans skín einhvers konar
rósrauður elliheimilislöngunarbjarmi.
„Tímamótin leggjast vel í mig og
ég er þakklátur fyrir það sem lífið
hefur gefið mér til þessa og því einskis
nema góðs að vænta î framtíðinni. Ég
er fullur tilhlökkunar, það verða sem
fyrr næg verkefni við að fást.“
/GS
Laugar landsins
Sundlaug Seltjarnarness
Sundlaug Seltjarnarness stendur
við Íþróttamiðstöð Seltjarnarness
við Suðurströnd. Laugin var tekin
í notkun árið 1984 en verulegar
endurbætur voru gerðar á henni
árið 2006. Segja má að hið eina
sem eftir stóð eftir endur bæturnar
hafi verið laugarkerin sjálf, en
þau voru einnig flísalögð upp á
nýtt og löguð. Um 190.000 manns
sóttu laugina heim í fyrra, fyrir
utan börn undir greiðslualdri.
Laugin sjálf er 25 metra
hefðbundin laug sem almenningur
nýtir til sundiðkunar en einnig
fer skólasund fram í lauginni.
Við hlið hennar er barnalaug með
hærra hitastigi. Þá er vaðlaug með
leiktækjum fyrir yngstu kynslóðina
sem iðulega er full af börnum
að leik. Þrír heitir pottar eru á
laugarsvæðinu, þar af einn stór og
mikill nuddpottur. Rennibraut er
við laugina og við hana er setpottur
sem nýtist foreldrum til að fylgjast
með ungviðinu við leik. Á útisvæði
er jafnframt eimbað og útiklefar.
Stórir búningsklefar eru inni og góð
aðstaða fyrir fatlaða.
Vatnið í lauginni hefur ákveðna
sérstöðu en það kemur beint frá
borholu hitaveitu Seltjarnarness í
nágrenninu. Vatnið er steinefnaríkt
og er laugin af þeim sökum vinsæl
hjá fólki með viðkvæma húð, þar eð
vatnið þykir fara betur með húðina
en annað sundlaugarvatn.
Sundlaug Seltjarnarness er opin
frá 6.30 til 21.00 á virkum dögum
en frá 8.00 til 19.30 um helgar yfir
sumartímann. Á vetrum er opið frá
8.00 til 18.00 um helgar. Frekari
upplýsingar má fá í síma 561-1700
eða með því að senda tölvupóst á
netfangið haukur@seltjarnarnes.is.
Björn Ingi Bjarnason, forseti
Hrútavina félagsins Örvars.
Hljómsveitin Granít frá Vík í Mýrdal á Sólbakka 2011. F.v.: Auðbert Vigfússon, Hróbjartur Vigfússon, Guðmundur
Pétur Guðgeirsson, Bárður Einarsson, Kristinn Jóhann Níelsson og Sveinn Pálsson. Síðan Önundur Pálsson
upptöku meistari, Ásgeir Magnússon, sveitarstjóri í Vík, sem er ættaður frá Sólbakka, og Eiríkur Finnur Greipsson,
formaður bæjarráðs Ísafjarðarbæjar.