Bændablaðið - 07.03.2013, Blaðsíða 8
Bændablaðið | Fimmtudagur 7. mars 20138
Fréttir
Huppa frá Kálfagerði nythæsta
kýrin í Eyjafirði á liðnu ári
Mjólkurbúin á Eyjafjarðar-
svæðinu eru mun stærri en á lands-
vísu, samkvæmt afurðaskýrslum
fyrir síðasta ár. Á landinu öllu var
stærð meðalbúsins 38,9 árskýr, en í
Eyjafirði voru að jafnaði 47,8 kýr.
Nythæsta búið fyrir norðan var
Syðri-Bægisá og var búið í þriðja
sæti á landsvísu. Þar voru árskýrnar
31,9 sem mjólkuðu að jafnaði 7,599
kíló.
Nythæsta kýrin á Eyjafjarðar-
svæðinu í fyrra var Huppa frá
Kálfagerði, sem var í fimmta sæti
yfir afurðahæstu kýr landsins.
Huppa mjólkaði á árinu 12.113 lítra
og hámarks dagsnyt var 49,1 lítri.
Þetta var fjórða mjaltaskeið Huppu.
Á því fyrsta mjólkaði hún 6.887 ltr.,
á öðru skeiði 8.597 ltr. og á því þriðja
mjólkaði Huppa 10.905 lítra.
Um miðjan janúar fæddist naut-
kálfur undan Huppu og nauts-
föðurnum Tópasi. Kálfurinn hlaut
nafnið Tárus og hefur hann þegar
verið valinn á sæðingarstöð.
Mikil metnaður í ræktunarstarfi
Hjónin Ágúst Ásgrímsson og Hulda
Sigurðardóttir keyptu Kálfagerði
árið 2002 og reka þar kúa- og
hrossaræktar bú. „Kúabúskapur er
líf og yndi ábúenda í Kálfagerði og
nafnið því vel við hæfi,“ segir Hulda.
Mikill metnaður hefur verið
lagður í ræktunarstarfið síðan hjónin
keyptu jörðina árið 2002 og hafa
framfarir verið miklar á þessum
stutta tíma, og má þá sérstaklega
nefna júgurgerð. Ræktunaráhuginn
liggur þó á fleiri stöðum því á bænum
er um 40 hrossa stóð og fæðast um
4-7 folöld á ári. Þar er áhersla lögð
á að rækta framfalleg hross með
taktgott og rúmt gæðatölt með eðlis-
góðum fótaburði.
Hestamennska og skotveiði
Hestamennska er sameiginlegt
áhugamál hjá öllum í fjölskyldunni
en þau hjón eiga þrjú börn, Bergþór
Bjarma 9 ára, Ágúst Mána 13 ára
og Önnu Sonju 25 ára. Anna Sonja
er útskrifuð tamningakona frá
Hólaskóla og vinnur við tamningar
og þjálfun í Kálfagerði, ásamt öðrum
bústörfum. Auk þess stundar hún nú
fjarnám við Landbúnaðarháskólann
og stefnir á að ná sér í BS-gráðu í
búvísindum.
Skotveiði er enn eitt áhugamál
þeirra hjóna og skiptir þar litlu hvort
það er rjúpa eða gæs. Labradortíkin
Rösk fylgir þeim þar hvert fótmál
og er Hulda búin að þjálfa hana
til að taka þátt í veiðiprófum með
góðum árangri. Á sumrin stundar
svo Ágúst stangveiði af miklu kappi,
svona á milli slátta, og fer ófáum
veiði sögunum af honum og Begga
tvíburabróður hans.
Allir í íshokkí
Óvenjulegasta áhugamál fjöl-
skyldunnar er þó líklega íshokkí, enda
Ágúst og Hulda bæði fædd og uppalin
í Innbænum á Akureyri og Kálfagerði
er ekki í nema um 20 mínútna
aksturfjarlægð frá Skautahöllinni.
Og það eru ekki bara krakkarnir
sem æfa heldur foreldrarnir líka! Þær
mæðgur eru á leið til Spánar á HM
í íshokkí núna um komandi páska,
Hulda sem aðstoðarþjálfari og Anna
Sonja sem leikmaður og fyrirliði
kvennalandsliðsins.
Fyrir þá sem vilja fylgjast með
lífinu í Kálfagerði má geta þess að
fjölskyldan heldur úti heimasíðunni
kalfagerdi.123.is. /MÞÞ
Páskar á Bjarteyjarsandi
Ferðaþjónustubændur á
Bjarteyjarsandi í Hvalfirði bjóða
í samstarfi við Ferðaþjónustu
bænda upp á sérstakt páskatilboð
á gistingu í sumarhúsum.
Boðið verður upp á gistingu í
þrjár nætur á verði tveggja. Húsin
sem um ræðir eru rúmgóð og vönduð.
Þau eru staðsett í fallegri fjallshlíð
með frábæru útsýni yfir Hvalfjörð.
Margar gönguleiðir eru í nágrenninu
og hægt að fá persónluega leiðsögn
um margar þeirra. Auk þess verður
fjölbreytt dagskrá um páskana, bæði
á Bjarteyjarsandi og í Hvalfirði
öllum:
Helgin 23.-24. mars: Opið í
Gallerí Álfhól. Sérstök kynning á
lambakjöti beint frá býli, uppskriftir,
smakk og fróðleikur. Opið milli kl.
13 og 16 báða dagana og einnig í
Dymbilvikunni. Lokað föstudaginn
langa. Nánari upplýsingar um
sérpantanir og fleira: www.
bjarteyjarsandur.is
Miðvikudagur 27. mars kl. 20.30:
Sönglagastund í sveitinni. Hinir ýmsu
söngfuglar flytja fjölbreytta dagskrá
fyrir gesti. Afslöppuð samverustund
í Hlöðunni á Bjarteyjarsandi.
Laugardagur 30. mars:
Kaffikúnstir og krákuskeljar.
Fjölskyldudagur á Bjarteyjarsandi
sem hefst með fjöruferð kl. 13.00.
Sandkastalakeppni, óskasteinaleit og
kræklingatínsla. Heimsókn í fjárhús
þar sem eru meðal annars páskaungar
og kanínur. Kaffiveitingar í Hlöðunni.
Fleiri viðburðir á svæðinu
Laugardagur 30. mars: Páskaeggjaleit
á Þórisstöðum í Svínadal, súpa í
súpuskála og fleira. Opið 11-15.
Herminjasetur og sundlaug að
Hlöðum: Opið alla páskana milli
klukkan 13 og 19.
Þá er einnig boðið upp á
veiðiopnun, passíusálmaupplestur,
gönguferðir og fleira. Nánari
upplýsingar á www.bjarteyjarsandur.
is www.hladir.is www.thorisstadir.is
www.hvalfjardarsveit.is
Nemendur LbhÍ á YouTube
Mikill áhugi virðist vera
meðal ungs fólks á námi í
Landbúnaðarháskóla Íslands á
Hvanneyri um þessar mundir.
Fyrir þá sem vilja kynna sér
nánar reynslu annarra af slíku
námi hefur Áskell Þórisson,
útgáfu- og kynningarstjóri LbhÍ,
sett viðtöl við nemendur inn á
YouTube. Hægt er að hlusta á og
skoða þessi viðtöl á vefslóðinni:
http://www.youtube.com/channel/
UCGsoaRENQKfa5SCvvM-ATXg/
videos?view=0
Rekstur Norðlenska gekk vel í
fyrra og 2012 er raunar næstbesta
rekstrarár félagsins frá upphafi.
Ársvelta félagsins var tæpir 4,7
milljarðar króna og jókst um rúm
3,1% á milli ára. Hagnaður ársins
var 188,5 milljón króna og eigið
fé Norðlenska er 508,4 milljónir
króna. Á aðalfundi félagsins
í dag var samþykkt að greiða
eigandanum, Búsæld ehf., félagi
525 bænda, arð að upphæð 15
milljónir króna.
Norðlenska matborðið ehf. sendi
út fréttatilkynningu í kjölfar aðal-
fundar félagsins sem haldinn var á
Akureyri í síðustu viku, en þar segir:
Rekstur Norðlenska gekk vel í
fyrra og 2012 er raunar næstbesta
rekstrarár félagsins frá upphafi.
Ársvelta félagsins var tæpir 4,7
milljarðar króna og jókst um rúm
3,1% á milli ára. Hagnaður ársins
var 188,5 milljón króna og eigið
fé Norðlenska er 508,4 milljónir
króna. Á aðalfundi félagsins í dag
var samþykkt að greiða eigandanum,
Búsæld ehf., félagi 525 bænda, arð
að upphæð 15 milljónir króna.
Hagnaður ársins var 188,5 millj-
ónir kr., en 2011 var hagnaður
290,9 milljónir kr.
Ársveltan var rúmar 4.690,9
milljónir kr., og jókst um rúm
3,1% á milli ára.
EBIDTA hagnaður ársins var
325,4 milljónir kr. samanborið
við 388,3 milljónir kr. árið 2011.
Heildareignir Norðlenska voru
í árslok 2.882,8 milljónir króna.
Eigið fé í árslok var 508,4
milljónir kr. en var 385,9 m.kr.
í lok árs 2011.
Vaxtaberandi skuldir hafa
hækkað um 224,4 milljónir kr.
á milli ára.
Veltufjárhlutfall var í árslok
1,37.
Margir þættir lögðu grunninn að
góðu uppgjöri félagsins
Hagnaður ársins er m.a. til
kominn vegna sterkrar stöðu á
innanlandsmarkaði, en vörur og
vörumerki Norðlenska njóta mjög
mikilla vinsælda hjá neytendum.
Markvisst hefur verið unnið að því
að gæta aðhalds, og segja má að
vinna síðustu ára við hagræðingu
hafi skilað sér í uppgjöri ársins 2012.
Fyrirtækið er nú í ágætri stöðu. Ljóst
er að eigendur og starfsfólk geta
verið stoltir af góðu fyrirtæki.
Að sögn Sigmundar Ófeigssonar,
framkvæmdastjóra Norðlenska,
var reksturinn ágætur framan af
ári, m.a. vegna góðrar stöðu á
innanlandsmarkaði. Á sama tíma
fékkst viðunandi verð fyrir kjöt
erlendis, það lækkaði þó er á árið leið
og þá virtist innanlandsmarkaðurinn
gefa eftir; sala var heldur minni en
reiknað var með og ódýrari vörur
seldust meira en þær dýrari. Markaðir
fyrir gærur versnuðu verulega og verð
lækkaði mikið. Verð fyrir hinar ýmsu
auka afurðir var hins vegar mjög gott
á árinu, fyrirtækið hefur lagt aukna
áherslu á að fullnýta sláturgripi,
aukaafurðir eru allar fluttar út og
skiluðu þau viðskipti góðum hagnaði.
Reksturinn var því góður þegar
upp var staðið og þess vegna ákvað
stjórn Norðlenska í dag að greiða
Búsæld, eiganda fyrirtækisins, arð
að upphæð 15 m.kr.. Hagnaður
Norðlenska árið 2012 var 188,5
milljónir kr. á móti 290,9 milljóna
kr. hagnaði árið áður.
EBITDA ársins varð 325,4 millj-
ónir kr. en var 388,3 milljónir kr. árið
áður.
Stjórn Norðlenska er óbreytt að
loknum aðalfundi, en í henni eru
eftirtaldir:
Heiðrún Jónsdóttir, Garðabæ,
stjórnarformaður, Ingvi Stefánsson,
Teigi, varaformaður, Geir Árdal,
Dæli, ritari, Aðalsteinn Jónsson,
Klausturseli, meðstjórnandi, Sigríður
Elín Sigfúsdóttir, Reykjavík, með-
stjórnandi.
Varamenn eru: Óskar Gunnarsson,
Dæli Skíðadal, Gróa Jóhannsdóttir,
Hlíðarenda og Jón Benediktsson,
Auðnum.
Gott gengi hjá Norðlenska
Huppa mjólkaði í fyrra 12.113 lítra. Mynd / Ágúst Ásgrímsson
Hulda og Rösk, sem er með 1.
Melgerðismelum 2012.