Bændablaðið - 07.03.2013, Qupperneq 32
32 Bændablaðið | Fimmtudagur 7. mars 2013
Íslenskar prjónakonur í víking
á prjónasýningu á Englandi
Helgina 22.-24. febrúar fór hópur
íslenskra hannyrðakvenna í
ferð á vegum fyrirtækisins
Culture & Craft með Ragnheiði
Jóhannsdóttur sem fararstjóra
á stóra prjónasýningu í bænum
Farnham í Englandi, sem kölluð
er Unravel. Konurnar áttu ekki
í neinum erfiðleikum með að
eyða heilum degi á sýningunni
þar sem garntegundirnar skiptu
hundruðum og hægt var að
finna tölur og prjóna í öllum
stærðum og gerðum og kynnast
mismunandi aðferðum við að
nýta ullarhráefnið.
Sýningin, sem haldin var í
fimmta sinn, fór fram í gömlu
brugghúsi í Farnham, sem nú er
nýtt sem menningarhús fyrir ýmsa
viðburði. Að auki voru vinnustofur
sem hægt var að skrá sig í þar sem
kenndar voru mismunandi aðferðir
eins og að prjóna með perlum,
nálaþæfa fígúrur og jurtalitun svo
fátt eitt sé nefnt.
Íslenski hópurinn vakti athygli
Það vakti mikla athygli að hópur frá
Íslandi væri væntanlegur á sýninguna
og var þess sérstaklega getið í kynn-
ingarriti um hátíðina. Einnig fékk
hópurinn góðar móttökur og var
beðinn um vera með í myndatöku
þar sem bæjarstjóri Farnham-bæjar,
Stephen Hill, og kona hans, Helen,
sátu fyrir og nokkur af svæðis-
blöðum bæjarins komu til að mynda
hjónin með fríðum hópi íslenskra
hannyrðakvenna sem skörtuðu
allar sínum glæsilegu íslensku
lopapeysum.
/ehg
Íslenska hópnum var vel tekið og komu bæjarstjóri Farnham-bæjar, Stephen Hill, og frú hans, Helen Hill, við til að stilla sér upp fyrir myndatöku með hópnum þar sem nokkrir fjölmiðlar af
svæðinu komu til að mynda gestina. Myndir / ehg
og spinna.
Mikið var gert úr því að hópur íslenskra prjónakvenna væri á leið á sýninguna
og sérstakur bás var hafður til að kynna íslensku ullina. Útvarpsfréttakona
þátttöku Íslendinganna á sýningunni. Örlítið sýnishorn af því sem hægt var að kaupa sér á sýningunni.