Læknablaðið - 01.09.1960, Qupperneq 21
LÆKNABLAÐIÐ
101
fleiri liafa bent á þessa stað-
reynd. Þessar breytingar eru að-
allega tvenns konar: 1. Berkla-
sár (cavernur) verða gjarna
þykkveggjaðri, og fvllast af yst-
um vefi, þ. e. breytast í það,
sem kallað er tuberculoma; og
vegna þessara breytinga gróa
þær síður. 2. Frumur frá
berkjugreinum vaxa inn í hol-
urnar og klæða þær innan, að
nokkru eða öllu leyti, þ. e. ca-
vernan epiteliserast, sem kallað
er, Eðlileg afleiðing af þessu er
sú, að liolan grær siður, jafnvel
þó takist að fella liana saman.
Og þó að takast mætti að drepa
alla berklasýklanna i þessum
sjúku lungum, mundu liolurnar
samt vera ákjósanleg gróðrar-
stia fyrir aðra sýkla og getur
orðið full þörf að nema þær
brott af þeim ástæðum. En nú
er alltaf einhver ysting um-
hverfis berklasár, og sannað
liefur verið óhrekjanlcga, eins
og ég mun geta um hér á eftir,
að i ystum vefi geti berklasýkl-
arnir lifað mjög lengi þrátt fyr-
ir lyfjagjöf.
Resectio pulm. vinnur alls
staðar á, en þó fremur liægt á
Norðurlöndum, og minnist ég
síðar á ástæðuna fyrir því. Þeg-
ar valið er um aðgerð, þá er
það einkum þrennt, sem verður
að atliuga mjög vel. I fvrsta lagi,
hvaða aðgerð er líklegust til að
gera sjúklinginn varanlega
smitlausan, í öðru lagi tíðni
dauðsfalla við aðgerðirnar og
í þriðja lagi, hversu mikið önd-
unarhæfni sjúklingsins skerðist
við aðgerðina. Enn þá er all-
mikið deilt um þessar aðgerðir,
en ég mun ekki eyða miklum
tíma í að rekja þær deilur hér.
Nú þegar er þó margur nokkuð
almennt viðurkenndur rök-
stuðningur fyrir resectio, svo
sem:
1. Berklasár, sem livorki lok-
ast með lyfjum né sam-
þj öppunar-aðgerðum.
2. Stór berklasár eða þykk-
veggjaðar holur, sem ólík-
legt er talið, að lokist við
þjöppun utan frá.
3. Stórar berklaholur, sem
ekki er tryggt að grói, jafn-
vel þótt þær virðist lokast
við lyfjagjöf eða sam-
þj öppunar-meðferð.
4. Gjöreyðilagður lungnageiri,
lungnablað eða lieilt lunga.
5. Berkjuþrengsli (broncho-
stenosis) af völdum berkla.
6. Berkjuvíkkun (bronchiec-
tasis) af völdum berkla.
7. Sjúkdómur, sem helzt virk.
ur eða verður virkur á ný
undir thoracoplastic.
8. Tuberculoma.
9. Berklaholur i lobus medius
og lobus inferior.
10. Grunur um illkynja vöxt.
11. Sjúkdómsleifar (residua)
eftir langvarandi Mjagjöf.
Erfiðustu sjúklingarnir, sem
við fáum til aðgerða, eru flest-
ir í fvrstu 5 flokkunum, en þó
nokkrir í 7. og 9. flokki. Meira