Læknablaðið - 01.09.1962, Page 44
114
L Æ KNABLAfilÐ
1. Læknafélag Reykjavíkur mót-
mælir bráðabirgðalögum þessum
sem gerræði. 1 því sambandi vili
félagið benda á, að vinnustöðvun
skyldi alls ekki hefjast hjá lækn-
um hinn 1. október 1961, heldur
féllu þá aðeins úr gildi samningar
við ákveðna aðila. Slíku verður alls
ekki jafnað til vinnustöðvunar.
Þekkist það í nágrannalöndum vor-
um, t. d. Svíþjóð, að engir samn-
ingar séu á milli sjúkrasamlaga og
lækna, en sjúkrasamlögin greiða
félagsmönnum sínum hluta af lækn-
iskostnaðinum. Telja margir, að
með sliku fyrirkomulagi fáist betri
læknisþjónusta fyrir almenning. Fé-
laginu er eigi kunnugt um, að fyrr
hafi löggjafarvaldið skipt sér af
einkaréttarsamningum á vinnu-
sviðinu, nema um vinnustöðvun
væri að ræða.
Af hendi félagsmálaráðherra var
alls ekki rætt við fyrirsvarsmenn
félagsins fyrir setningu bráða-
birgðalaganna, og er ástæða til að
ætla, að sjónarmið í deilu þessari
hafi aðeins verið skýrð fyrir félags-
málaráðherra af öðrum aðilanum.
2. 1 forsögn fyrir bráðabirgða-
lögunum er gert ráð fyrir, „að
greiðslur til lækna hækki mjög mik-
ið eða um og yfir 100%“. Hér er
málinu blandað. Sjúklingur, sem
ekki var í sjúkrasamlagi er samn-
inga hafði við Læknafélag Reykja-
vikur, þurfti að greiða nákvæmlega
sama fé fyrir heimilislæknisþjón-
ustu fram til 30. sept. 1961 og gert
var ráð fyrir af félaginu, að hann
þyrfti að greiða fyrir þann tíma.
Þá var af hendi lækna gert ráð
fyrir verulegum endurbótum í
læknaþjónustunni frá og með 1. okt.
1961, t. d. með stóraukinni varð-
þjónustu og skyndihjálparþjónustu.
3. Af hendi Sjúkrasamlags
Reykjavíkur og Tryggingarstofnun-
ar rikisins hafa ekki komið fram
neinar ákveðnar tillögur eða tilboð
um breytingar á samningskjörum
þessara aðila og lækna, að fráskildu
tilboði um bráðabirgðahækkun á
greiðslum til lækna.
4. Það er skoðun félagsins, að
þessi þróun rnála torveldi mjög alla
samninga milli lækna og sjúkrasam-
laga hins vegar, til tjóns fyrir alla
aðila.
5. Læknafélag Reykjavíkur vé-
fengir stjórnskipulegt gildi bráða-
birgðalaga þessara og áskilur sér
rétt til að bera gildi þeirra undir
dómstólana. Á það einnig við um
þá spurningu, hvort hér sé eigi um
lögnám að ræða, enda þótt lögin
sem slík verði talin stjórnskipulega
gild.
6. Þrátt fyrir allt þetta, mun
læknafélagið hér eftir sem hingað
til reyna að sjá til þess, að þjóð-
félagsborgararnir fái svo góða
læknaþjónustu sem unnt er og að
þeir verði fyrir sem minnstum
óþægindum i sambandi við mál
þessi.
(Undirskriftir.)
Hinn 1. okt. samþykkti stjórn
félagsins á fnndi mótmæli gegn
bráðabirgðalögunum, og voru
þau efnislega sambljóða bréfi
því, sem sent var félagsmála-
ráðberra og birt er bér að fram-
an. Voru mótmæli þessi síðan
birt i dagblöðunum.
Á almennum læknafundi 2.
okt. 1961 voru einnig eftirfar-
andi mótmæli samþykkt sam-
hljóða og þau birt í dagblöð-
unum:
„Almennur félagsfundur
Læknafélags Revkjavíkur, liald-
inn í Háskólanum mánudaginn