Læknablaðið - 01.06.1968, Blaðsíða 55
LÆKNABLAÐIÐ
133
7. Áverki á hjarta (laesio cordis). Álitið er, að áverki á
lijarta komi oftar fyrir en greint er, en hjartanu getur verið
hætta búin við iiögg, einkum á vinstri liluta brjóstkassa, t. d. við
bifreiðaárekstur (stýrislijól), en einnig við fall úr töluverðri
hæð.
Arið 1955 tóku Bright og Beck1 saman skrá um 175 tilfelli af
hjartaáverka. Af þeim voru 152 sjúklingar með rifu á einu eða
fleiri hjartahólfum, sem ollu dauða, banamein 11 var hjartabilun
(m^^ocard. insufficiens), án þess að lijartað rifnaði. Tólf lifðu
og var sjúkdómsgreining þeirra: contusio myocardii. Bright
og Beck álitu samt, að hundraðstala dauðsfalla væri ekki eins
há og þessar tölur henda til, því að mörg tilfelli á contusio cordis
væru ekki greind.
Árið 1937 settu White og Glenby1 fram eftirfarandi niður-
stöður viðvíkjandi höggi (trauma) á hjartastað:
1. Því alvarlegri sem áverki á brjóstvegg er, því meiri
líkur eru á hjartasköddun.
2. Því veikara sem hjarta er fyrir, því hættara er því.
3. Því viðkvæmari (nervösari og sensitívari) sem
sjúklingurinn er, þeim mun fleiri verða einkennin
eftir áverka.
Áverki á hjartavöðva, sem er afleiðing af höggi, getur verið
mismunandi, allt frá smábletti með bjúg og smáblæðingum undir
innra blaði gollurshúss (epicardium) eða innanhimnu hjartans
(endocardium) og til fullkominnar rifu.
Einkenni hjartaáverka, sem koma ekki alltaf fram við fyrstu
skoðun, en þau greinast með aðstoð hjartalínurits, geta því verið
mjög mismunandi, eða allt frá hreytingu á reglubundinni hreyf-
ingu (rhythma) og ýmsum leiðslulruflunum og upp í bráða
hjartahilun (insufficientia cordis).
Horfur sjúklings eru ekki aðeins komnar undir úthreiðslu
áverkans á hjartanu, heldur einnig undir því, hve áverkinn að
öðru leyti er mikill, og því, hvernig sjúklingur svarar við með-
ferð.
I þessu sambandi er rétt að minnast á gollursblæðingu
(hjarta-tamponade), þar sem Islóð safnast fyrir innan gollurshúss
(haemopericardium). Aukinn þrýstingur innan gollurshússins
veldur smám saman lækkun á slagæðaþrýstingi og hækkun á
bláæðaþrýstingi. Þegar þrýstingurinn innan gollurshússins er orð-
inn jafnhár þrýstingnum í holæðum (venae cavae), rennur ekki
lengur blóð til hjartans, og orsakar það dauða.