Læknablaðið - 01.06.1968, Blaðsíða 76
150
LÆKNABLAÐIÐ
LEIÐRÉTTING
Læknablaðinu hafa borizt nokkrar leiðréttingar frá Helga Skúlasyni,
f.v. augnlækni, við minningarorð hans um Pétur Jónsson lækni í síð-
asta tölublaði.
Á 53. bls., 9. 1. stendur: (infarct. myocordii), á að vera (infarct.
myocardii).
Á 54. bls., 7. 1. stendur: vinsemda, á að vera: vinsælda.
11. 1. stendur: liðlegur og æfður læknir, á að vera: liðlegur
practicus.
18. 1. stendur: fimmtudaginn 4. marz, á að vera: mánudag-
inn 4. marz.
22. 1. stendur: samlagsfélaga, á að vera: samlagsmeðlima.
34. 1. stendur: ekki, á að vera: aldrei.
35. 1. stendur: kofanum, á að vera: kofunum.
Á 55. bls., 5. 1. stendur: lifað, á að vera: upplifað.
FRÁ UNGUM LÆKNUM f REYKJAVÍK
f des. 1967 tóku nokkrir ungir aðstoðarlæknar á sjúkrahúsum í
Reykjavík sig til og mynduðu umræðuhóp i þeim tilgangi að ræða sam-
eiginlega ýmis mál, er þá varða sérstaklega, þ. e. unga lækna án sér-
fræðiréttinda. Leitazt hefur verið við að fá sem flesta til þátttöku og
gengið vel. Hópurinn hefur komið saman á tveggja til þriggja vikna
fresti, og hafa ýmis mál verið rædd, t. d. uppbygging sérnáms, heimilis-
lækningar, ethisk mál, kjaramál, svo að eitthvað sé nefnt. Hafa um-
ræður spunnizt um öll þessi mál og verið mjög gagnlegar, þar eð sá
háttur er á hafður, að einn eða fleiri menn úr hópnum eru tilnefndir til
að kynna sér ákveðin mál og lýsa þeim síðan á næsta fundi, en síðan
hafa verið frjálsar umræður. Þannig hefur þátttakendum aukizt skiln-
ingur á mörgum málum, og menn hafa fræðzt um ýmislegt, sem áður
var þeim hulið.
Hópurinn kallar sig umræðuhóp unglækna og er óformlegur hóp-
ur áhugamanna í læknastétt um ýmiss konar félagsmál og skipulags-
mál m. a. Er öllum læknum frjáls aðgangur að fundum hópsins, hafi
þeir áhuga á umræðum um einhver áðurnefnd mál eða vilji þeir taka
önnur til umræðu.
Sé áhugi fyrir hendi, þarf einungis að hafa samband við undirrit-
aðan eða Helga Þ. Valdimarsson, sími 14039, og verða þeir þá boðaðir
á fundi.
F. h. umræðuhóps unglækna,
Eyjólfur Þ. Haraldsson,
sími 50754.