Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 01.10.1969, Page 37

Læknablaðið - 01.10.1969, Page 37
LÆKNABLAÐIÐ 163 af 11 atriðum eru fyrir hendi. Þar næst vís (definite) liðagikt með 5 atriði og loks sennileg liðagikt, með 4 atriði. Sjúkdómsmerkin þurfa að hafa staðið í sex vikur samfleytt, til þess að lelja megi liðagikt dæmigerða eða vísa, en fjórar vikur, svo að hún sé senni- leg. Þar sem ýmis þessara sjúkdómsmerkja eru ekki bundin liða- gikt eingöngu, var gerður listi 22ja líkra sjúkdóma, sem liafa skyldi til hliðsjónar við greininguna. Væri einhver þeirra fyi'ir hendi, skyldi það útiloka liðagikt eða draga mjög úr líkum fyrir þeim sjúkdómi. Ljóst liggur fyrir við lestur þessara atriða, að ekki er allur vandi leystur með þeim. Skilmerki margra giktsjúkdóma eru óljós, eins og eðlilegt er, þegar orsakir eru óþekktar. Dæmi eru til þess, að Reiters syndrom og spondylitis anchylopoietica hafi end- að sem dæmigerð liðagikt. Ekkert er heldur því til fyrirstöðu, að fólk með lungnasjúkdóm ellegar ])lóðsjúkdóm fái liðagikt. Gildi þessara atriða er fyrst og fremst það, að þau eru tilraun til að skipta í kerfi merkjum sjúkdóms, hvers orsakir við vitum ekkert um. Þau gera greininguna skýrari og auðvelda skilning á niður- stöðum rannsókna víðs vegar að. Til hjálpar við greininguna eru rannsóknir á blóðvatni, lið- vökva, vefjum svo og röntgenrannsókn liða. Aðrir ræðumenn gera þessum þáttum skil. Hér verður aðeins minnzt á þau alriði, sem fram geta komið við skoðun og viðtal. Nákvæm sjúkrasaga og sjúkdómslýsing verður aldrei oflofuð. Upplýsingar um atvinnu og aðrar kringumstæður varpa oft ljósi á einkenni, sem ella vrðu óskýrð. T. d. er algengt, að þunglyndi og andleg spenna orsaki lið- eða vöðvaverki. Saga um morgunstirð- leika er mikilvæg, og upplýsingar um, hve langan tíma hann tek- ur að hverfa, má ekki vanta. Við skoðun skiptir meginmáli að gera sér grein fyrir, hvort óþægindi sjúklings stafi frá liðum eða hvort um vöðvaverki eða leiðsluverki sé að ræða. Athuga þarf alla liði, að hryggjarliðum og kjálkaliðum meðtöldum, og eins að líta eftir húðhita, lil og raka- stigi, sjáanlegum þrota og vöðvarýrnun, sem stundum sést snemma. Þar næst verður að þukla liði m. t. t. bólgu, eymsla, vökva og núningsmótstöðu og síðan athuga hreyfanleika. Gott er að hafa í huga, að fólk með lítt virka liðagikt hefur stundum teygjanlegri liðbönd og lausari liði en heilbrigt fólk á sama aldri. Gá þarf að giktarhnútum við sinar og beinbrúnir og tophi á eyrum. Sé vökvi í lið, getur hann veitt töluverðar upp- lýsingar um þann sjúkdóm, sem veldur vökvasafninu.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.