Læknablaðið - 01.10.1969, Page 48
172
LÆKNABLAÐIÐ
ar rannsóknir hafa leitt í ljós breytingar á f'rumum A-gerðar við
arthritis rheumatoides. Þegar frá líður, verða villi enn stærri og
óreglulegri, og bandvefsmyndun hefst í jjeim. Þá fara þeir að fest-
ast við liðholsveggina og taka þátt í pannus-mynduninni.
Fibrinoid
er myndlaust (amorph) efni, sem litast svipað og fibrin og dreg-
ur af því nafn. Fibrinoid eða fibrinoidnecrosis á sér oft stað við
hina ýmsu svonefndu bandvefssjúkdóma. Með vefjaefnafræðileg-
um aðferðum er unnt að sýna fram á mismun á því fibrinoidi,
sem er í giktsótt (febris rheumatica), lupus erythematosus og
arthritis rheumatoides; liins vegar ekki á því fibrinoidi, sem er
annars vegar í liðum og hins vegar í æðaveggjum sjúklinga með
arthritis rheumatoides. 1 liðum með arthritis rheumatoides er
fibrinoid á og við yfirborð villi. Þegar á sjúkdóminn líður, er
fibrinoid smám saman leyst af hólmi af granulationsvef og band-
vef.
Liðvökvabreytingar
eru margvislegar, en einkum, að magn eggjahvítu er aukið og
hlutur fibrinogens í henni einnig. Gera má ráð fyrir sambandi
milli aukins fihrinogens annars vegar og fibrinoidmyndunar hins
vegar. 1 upphafi sjúkdóms er vökvamagnið aukið, en eftir því
sem á sjúkdóminn líður, minnkar það. Kindablóðkornaagglutina-
tion er sjaldnar jákvæð í liðvökva en í blóðvatni.
Brjóskeyðing
Heilbrigt brjósk er æðalaust og nýtur næringar frá liðvökva
og bandvef í kring. Bólgnir villi synovialis festast við brúnir lið-
brjósksins, og frá þeim vex granulationsvefur og bandvefur yfir,
undir og í gegnum brjóskplötuna. Snemma í sjúkdómnum sjást
hrörnunarbreytingar í brjóskinu, sem eyðist undan granulations-
vefnum og bandvefnum, sem nú er kallaður pannus.
Pannus
Þessi bandvefsmyndun byrjar sem sagt við brúnir hrjósksins
og vex að miðju. Lengi eru eftir eyjar af hrjóski, en stundum
verður alger beingerð (ankylosis) í liðnum. Pannus vex óreglu-
lega, og stundum teygjast tungur af pannus yfir hrjóskið og í
gegnum það, og sKkur vöxtur getur valdið holumyndun í bein-
inu, en á þann hátt er talið, að hinar svokölluðu pseudocystur,
sem sjást á röntgenmyndum, myndist.