Læknablaðið - 01.10.1969, Page 79
LÆKNABLAÐIÐ
189
Hannes Finnbogason:
SKURÐLÆKNINGAR Á BYRJUNAR-
STIGI LIÐAGIKTAR
Reynslan aí' skurðlækningum við liðagikt er ekki löng. Það,
sem ég hef að segja um þennan þátt í meðferð liðagiktar, ber því
að taka nieð nokkurri varúð, þar eð svo oft hefur sannazt, að menn
fvllast óraunhæfri hjartsýni, þegar eitthvað nýtt kenmr fram i
meðferð erfiðra sjúkdóma.
Skurðlækningum var lítið beitt í meðferð liðagiktar fyrir 20
árum. Til þess að veita nokkra hugmynd um þróun þessa þáttar
í meðferð liðagiktar, hregð ég hér uþp linuritum, hyggðum á árs-
skýrslum frá liðagiktarsjúkrahúsinu í Heinola í Finnlandi. Lækn-
ar þess sjúkrahúss eru taldir hafa manna mesta reynslu á þessu
sviði.
Skurðlækningar við liðagikt ern í aðalatriðum tvíþættar: I
fyrsta lagi þeltaka (synoviectomia) ó byrjunarstigi sjúkdómsins
og í öðru lagi ýmsar aðgerðir á bækluðum liðum.
Reynsla af þeltöku er næsta stutt. Er því eðlilegt, að
menn greini á um gildi hennar. Sú stutta reynsla, sem fengizt
hefur af henni á byrjunarstigi sjúkdómsins, hefur veríð svo góð,