Læknablaðið - 01.06.1971, Síða 22
84
LÆKNABLAÐIÐ
Dreifingarnar i öllum fjórum aldursflokkum eru skeifar*
með liala til hægri. Má glöggt sjá, að lægri gildunum fækkar og
hærri gildunum fjölgar hlutfallslega með vaxandi aldri og er
þetta í samræmi við vöxt fraktíla á 1. mynd.
3. mynd er fraktílrit af tíðniföllum** mælinganna í umrædd-
um fjórum árgöngum. Notaður er lógariþmalíkindapappír. Lá-
rétta hnitið er sökkið fært eftir lógariþma-mælikvarða, en lóð-
rétta hnitið er 'jnindraðstala þeirra, er hafa sökk minna en eða
jafnt því, sem lárétta hnitið segir til um.
Lárétta hnit þeirra punkta, sem markaðir eru á fraktílritið,
svarar til liægri endapunkta i grunnlínu stöplanna á 2. mynd,
nema lárétta hnit neðstu punktanna, er svarar til gildisins 1.5
mm/klst.
Lúti sökkmælingin innan livers árgangs lógnormal dreifingu,
]). e. lúti lógariþminn af sökkmælingunni normaldreifingu, eiga
punktarnir í fraldílritinu að dreifast um heina línu. Eins og'
sjá má á myndinni, virðist þessu skilyrði fullnægt.
Skil***
Þær niðurstöður sökkmælinga meðal íslenzkra karla, er að
framan hefur verið lýst, gefa einkum tilefni til að vekja athvgli
á eftirfarandi tveim atriðum:
í fyrsta lagi er auðsætt, að sökk liækkar nokkuð jafnt með
aldrinum. Að vísu var þetta fyrirbæri þekkt þegar á þriðja
tugi þessarar aldar. Olbrich9 getur nokkurra rannsókna, er
gerðar höfðu verið fram til 1918, þar sem þessu er lýst, en síð-
ar hefur þetta verið staðfest af ýmsum öðrum. 10 11 12 13 14 15
19 2. tafla sýnir niðurstöður sökkmælinga i þremur lióprann-
sókmun, er gerðar hafa verið á Norðurlöndum siðastliðinn ára-
tug.
Meðalsökkgildi í rannsókn Böttigers og Svedbergs15 virðast 1-3
nim lægri en í rannsókn Hjartaverndar, og gæti það skýrzt af
því, að niðurstöður þeirra liyggjast á hóprannsókn á starfs-
fólki fyrirtækja, þar sem hluti þátttakenda var útilokaður vegna
* Enska: skew, danska: skev
** Enska: empirical cumulative distribution
*** Hér er farið eftir tillögu dr. Vilmundar Jónssonar, fyrrv. land-
læknis, um að nota kaflaheitið „skil“ í stað umræðna (e. discussion),
sem tíðkazt hefur í íslenzkum læknaritum.