Læknablaðið - 01.06.1971, Page 29
LÆKNABLAÐIÐ
91
bíl eða flugvél), en samt kosta
slík tæki vart meira en um
tvö hundruð þúsund krónur.
Nú eru áhugamenn í leikmanna-
stétt að þrýsta á lækna að taka
við hjartabíl og tækjum að gjöí'.
En þá kemur til kasta þeirra,
sem stjórna íslenzkum sjúkra-
húsmálum. Óhemju-framfarir
verða sem betur fer i meðferð
hjartasjúkdóma ár hvert, og
rcyna hjartadeilclir sjúkrahús-
anna að taka upp allar nýjung-
ar. En stjórnéndur sjúkrahúsa
spyrna fast við fótum, þegar
talað cr um aukningu starfs-
fólks til að nýta þessar nýjung-
ar.
Er nú svo komið, að þau tvö
sjúkrahús í Revkjavík, scm
hafa hjartagæzludeildir, eru svo
illa mönnuð af læknum, að frek-
ar verðar að draga úr bjónustu
við lijartasjúklinga en auka
luina að óbreyttu starfsliði. Það
verður því miður að neita að
taka við gjöf áhugamanna um
hjartabíl vegna eklu á starfs-
fólki. Þannig mun sitja við
sama, að algengasta dánar-
orsökin hérlendis verður krans-
æðastífla og meir en helmingur
dauðsfalla af völdum hennar
verður utan sjúkrahúsanna,
nema heilbrigðis- og fjármála-
yfirvöld bæti úr.