Læknablaðið - 01.06.1971, Blaðsíða 32
94
LÆKNABLAÐIÐ
Allmiklar umræður urðu um breytingartillögur Læknafélags
Akureyrar og Læknafélags Vestfjarða á 9. gr. laga. Snerust bær eink-
um um kosti og galla endurkjörs á stjórn. Þessum umræðum lauk
með því, að flytjendur tillagnanna, fulltrúar áðurnefndra aðildar-
félaga, sömdu úr báðum tillögunum eina tillögu, sem þeir fluttu sam-
eiginlega, og var hún samþykkt samhljóða, en hún var þannig:
„Stjórnarmenn má aðeins kjósa í sama embætti tvö kjörtímabil
í röð.“
Bráðabirgðaákvæði: ,,í fyrsta sinn, sem kosið er eftir lögum þess-
um, skulu formaður og tveir meðstjórnendur kosnir til tveggja ára,
en ritari og gjaldkeri og einn varamaður til eins árs. Síðan skulu
stjórnarmenn kjörnir til tveggja ára.“
Þá var tekin til umræðu tillaga til breytingar á lögum L.f. frá
Daníel Daníelssyni. Gerði hann grein fyrir tillögu sinni og tildrögum
þess, að hún var fram borin. Síðan tóku til máls Sigmundur Magnús-
son, Brynleifur H. Steingrímsson, Halldór Halldórsson og Arni
Björnsson, sem allir lýstu sig mótfallna tillögunni. Var aðallega
fundið að henni, að ákvæði hennar byndi um of hendur stjórnar og
aðalfundar, til þess að hægt væri að koma ýmsum málum fram með
eðlilegum hætti, Arinbjörn Kolbeinsson taldi ýmislegt athyglisvert í
tillögunni, og varð niðurstaðan sú, að flutningsmaður féllst á, að til-
lögunni væri vísað til stjórnar L.í. til frekari athugunar.
Skýrslur Ritari L.Í., Friðrik Sveinsson, gerði stutta grein fyrir störf-
nefnda um gjaldskrárncfndar og gat þess, að samningar við Trygg-
ingastofnun ríkisins væru lausir frá síðustu áramótum og
hefði ekki þótt fært að ganga til samninga, fyrr en gjaldskrá hefði
verið fullunnin, en það hefði því miður dregizt á langinn. Myndi
því gengið til samninga nú i haust að loknum sumarleyfum.
Að öðru leyti vísast til ársskýrslu. Hann drap einnig á störf
staðgenglanefndar, sem hafði ekki náð verulegum árangri; ekki hefði
tekizt að koma á gjaldskrá fyrir staðgengla, en í gildi væri ein gjald-
skrá, sem læknanemar hefðu sett einhliða 1966. Taldi hann eðlilegan
gang, að læknar, sem þyrftu að ráða staðgengla, sneru sér til stjórnar
L.Í., sem hefði milligöngu við læknanema. Hann gat þess og, að lækna-
nemar hefðu lýst sig fúsa að vinna með praktíserandi læknum og
héraðslæknum; þeir teldu sig hafa af því meira gagn en vinna ein-
göngu fyiúr þá.
Reikningar Þá las Stefán Bogason og skýrði (sjá Lbl. 1969, 254.-255.
Ekknasjóðs bls.). Þeir voru samþykktir samhljóða.
Lífeyrissjóður Víkingur H. Arnórsson gerði lauslega grein fyrir
lækna störfum og hag Lífeyrissjóðs lækna, en aðalfundur
sjóðsins var haldinn síðar þennan dag.
Mál frá svæða- Halldór Halldórsson gerði grein fyrir þrem tillögum
félögum frá Læknafélagi Akureyrar, og formaður L.Í., Arin-
björn Kolbeinsson, flutti tillögur stjórnar L.í. og L.R.