Læknablaðið - 01.06.1971, Blaðsíða 34
96
LÆKNABLAÐIÐ
Tillaga kom frá Læknafélagi Vesturlands og var samþykkt:
„Læknafélag Vesturlands skorar á stjórn L.Í., að hún eigi frum-
kvæðið að því, að stofnað verði til kynlífsfræðslu í sjónvarpinu, og
þá með líku sniði og var í getnaðarvarnaþætti Jóns Þ. Hallgrímssonar."
LæknamiðstöSvar og Ræddar voru þrjár tillögur frá Læknafélagi
sjúkrahúsmál Akureyrar. Hvað fyrstu tillöguna varðaði, sem
fjallaði um daggjöld sjúkrahúsa, taldi Páll Sig-
urðsson eðlilegt, að læknasamtökin ættu aðild að daggjaldanefnd og
þyrfti L.í. að láta mál þetta til sín taka. Einnig talaði Halldór Halldórs-
son um tillögu þessa, en henni var vísað aftur til nefnda.
Eftirfarandi tillögur frá Læknafélagi Akureyrar voru samþykktar:
„Aðalfundur Læknafélags íslands 1969 felur stjórn L.í. að vinna
að því, að sem fyrst verði settur lágmarksstaðall fyrir íslenzka spítala
og þeim raðað í flokka eftir þjónustuhæfni.“
„Aðalfundur L.í. 1969 felur stjóm félagsins að vinna að því í
samvinnu við heilbrigðisyfirvöld landsins að koma á heildarskipulagi
heilbrigðisþjónustu í landinu og áætlanagerð um uppbyggingu sjúkra-
húsa, læknamiðstöðva og annarra heilbrigðisstofnana.“
Eftirfarandi tillaga frá Halldóri Halldórssyni og Ingimari Hjálm-
arssyni var samþykkt:
„Aðalfundur L.Í., haldinn í Domus Medica dagana 12.-14. sept.
1969, beinir því til stjórnar félagsins, að hún kanni, hvort ekki sé
tímabært að láta fara fram endurskoðun á sjúkrahúslögunum frá 1964,
og reynist svo, beiti hún sér fyrir slíkri endurskoðun.“
Talsverðar umræður urðu um aðrar tillögur, en þeim var síðan
vísað til nefnda til frekari athugunar.
Fundi frestað.
14. september var fundi fram haldið. Þá sátu fundinn eftirtaldir
fulltrúar: Björn Önundarson, Árni Björnsson, Víkingur H. Arnórsson,
Sigmundur Magnússon, Gunnlaugur Snædal, Friðrik Sveinsson, Arin-
björn Kolbeinsson, Brynleifur H. Steingrímsson, Halldór Halldórsson,
Þorsteinn Sigurðsson, Ólafur Sveinsson, Ingimar Hjálmarsson, Þórður
Oddsson og Stefán Bogason.
Fundarstjóri á þessum framhaldsfundi var Brynleifur H. Stein-
grímsson, en fundarritari Halldór Halldórsson.
Tillögur Nefndir, sem kosnar voru á aðalfundi 12. sept. til þess
nefnda að athuga framkomnar tillögur til ályktunar, skiluðu störf-
um, og voru eftirfarandi tillögur samþykktar samhljóða
eftir nokkrar umræður:
„Aðalfundur L.í. 1969 heimilar stjórn L.í. að gerast aðili að sam-
tökum heilbrigðisstétta, og að stjórn L.í. tilnefni menn til að mæta þar
fyrir hönd félagsins.“
„Aðalfundur L.í. 1969 felur stjórn L.í. að vinna að því, að dag-
gjöld sjúkrahúsa verði miðuð við þá þjónustu, sem viðkomandi sjúkra-
hús á að veita.“