Læknablaðið - 01.06.1971, Page 45
LÆKNABLAÐIÐ
99
Endurskoðendur Þá voru kjörnir endurskoðendur beir Guðmundur
Björnsson, aðalmaður, til eins ár, og Magnús Ólafs-
son til vara, einnig til eins árs.
Þá kvaddi sér hljóðs Arinbjörn Kolbeinsson, endurkjörinn for-
maður L.Í., og þakkaði það traust, sem honum og ritara væri sýnt
með þessu endurkjöri, og þakkaði Stefáni Bogasyni, fráfarandi gjald-
kera sérstaklega fyrir samvinnuna og mjög vel unnin störf við að
koma bókhaldi og fjárreiðum læknasamtakanna í gott horf. Þá þakk-
aði formaður meðstjórnendum fyrir gott samstarf, en þeir höfðu nú
um nokkurt skeið dvalizt erlendis. Hann bauð og nýja stjórnarmenn
velkomna til starfa og lýsti þeirri von, að stjórninni mætti auðnast
að halda farsællega á málum félagsins.