Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 01.08.1971, Blaðsíða 40

Læknablaðið - 01.08.1971, Blaðsíða 40
144 LÆKNABLAÐIÐ afmælisdaginn, heldur afmælisárið, enda eru þeir taldir stofnendur, sem gengu í félagið árið 1918. Hálfrar aldar afmælis Læknafélags íslands er minnzt í Domus Medica dagana 3.-5. okt. Fyrsti þáttur athafnarinnar er fræðslufundur um liðagikt (Rheumatoid arthritis). Dagskrá þess fundar er gerð á vegum „Giktsjúkdómafélags íslenzkra lækna“, og er fundurinn ein- göngu ætlaður læknum. Annar þáttur er heilbrigðismálaráðstefna, sem fer fram 4. og 5. okt., og er þar fjallað um heimilislækningar í dreifbýli og þéttbýli. Til þessarar ráðstefnu er boðið allmörgum stjórn- endum heilbrigðismála og fulltrúum starfshópa, sem vinna að heil- brigðismálum. Sjálft afmælishófið er haldið laugardaginn 5. október. Allir þættir athafnarinnar fara fram í læknahúsinu, Domus Medica, við Egilsgötu. Stjórn Læknafélags íslands skipa Arinbjörn Kolbeinsson formað- ur, Friðrik Sveinsscn ritari og Stefán Bogason gjaldkeri. Framkvæmdastjóri læknafélaganna er Sigfús Gunnlaugsson við- skiptafræðingur. Stofnun allsherjarfélags íslenzkra lækna átti sér alllanga forsögu. Fyrst skrifaði Ásgeir Blöndal, héraðslæknir á Húsavík, tvær greinar um þetta mál í ísafold 1891 og 1892. Þar ritaði hann m. a. bessi fram- sýnu hvatningarorð: „Svo lengi sem enginn félagsskapur, svo lengi sem engin vísindaleg eða verkleg samvinna á sér stað meðal lækna hér á landi, á stétt þessi sér litla framtíðarvon.“ Um þetta leyti voru aðeins 3 læknar í Reykjavík og hinir voru dreifðir um 27 læknishéruð, einn í hverju. Fyrsta félag lækna hér á landi var stofnað 1894 af 5 héraðslæknum í Austfirðingafjórðungi. Það hélt aðeins 2 fundi og lagðist starfsemi þess niður rúmum 2 árum eftir stofnun. Fyrsti almenni læknafundur hér á landi var haldinn 27.-30. ágúst 1896 í neðri deildar sal Alþingis, og var þar fundarstjóri dr. Jónas Jónassen landlæknir. Einn af atkvæðamestu mönnum þessa fundar var Guðmundur Hannesson, síðar prófessor. Hafði hann framsögu í 10 af þeim 18 málum, sem fyrir fundinum lágu. Meðal þessara mála var stofnun allsherjarlæknafélags á íslandi og einnig breyting á skipun læknishéraða. Hið síðastnefnda mál er í eðli sínu það sama og verkeíni það, sem tekið er til meðferðar á II. heilbrigðismálaráðstefnu Læknafélags íslands nú á afmælishátíðinni 4. og 5. október. Tveimur árum síðar var haldinn annar almennur læknafundur, og tóku þátt í honum 9 almennir læknar. Þar var stofnað fyrsta almenna læknafélagið á íslandi, ,,Hið íslenzka læknafélag“, 1898. Næsta fund, sem félag þetta boðaði, varð að hætta við, því að engir læknar gátu komið frá Norður- og Austurlandi, og var starfsemi fé- lagsins þar með lokið. 70 ár eru því liðin frá því fyrst var gerð tilraun til þess að stofna heildarsamtök íslenzkra lækna og hálf öld frá því það tókst. Af öðrum læknafélögum, sem stofnuð hafa verið, má nefna „Fé- lag lækna Norður- og Austurlands", sem Guðmundur Hannesson stofn- aði 1902, í sambandi við félag þetta gaf Guðmundur Hannesson út
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.