Læknablaðið - 01.08.1971, Blaðsíða 54
154
LÆKNABLAÐIÐ
of doctors in the country when the association was established 50 years
ago. Over the same period the population of the country has doubled.
The Icelandic Medical Association founded together with the
Medical Society of Reykjavík the selfowned institution Domus Medica,
which built this house in which the Half-a-Century Anniversary is
now commemorated. The pioneer of Domus Medica and the chairman
of the board of governors from the beginning has been Bjami Bjarna-
son.
The anniversary ceremony is in three parts:
1. Symposium (Rheumatoi arthritis), Oct. 3rd.
2. Conference of family doctor service, Oct. 4-5th.
3. Banquet, Saturday Oct. 5, 1968.
The governors of the Icelandic Medical Association are now Arin-
björn Kolbeinsson, chairman, Friðrik Sveinsson, secretary and Stefán
Bogason, treasurer.
Fylgiskjal 4
MINNI LÆKNAFÉLAGS ÍSLANDS
flutt af formanni, Arinbirni Kolbeinssyni, á hólfrar aldar afmælis-
hátíð félagsins
Herra forseti íslands, virðulega forsetafrú, háttvirta samkoma!
Þróun félagsmála hér á landi hefur skipazt á skömmum tíma, og
aðeins eru fá stéttarfélög, sem starfað hafa hálfa öld eða meir. Lækna-
félag Reykjavíkur, elzta félag íslenzkra lækna og næst elzta félag
akademískra borgara í landinu, var stofnað 18. október 1909. Lækna-
félag íslands, heildarsamtök íslenzkra lækna, var stofnað 14. janúar
1918, en það var mikið harðinda- og erfiðleikaár. Þá gekk yfir mesta
farsótt þessarar aldar. En árið var jafnframt frelsis- og fullveldisár.
Þá voru mörkuð tímamót í stjórnmálasögu landsins, tímamót, sem
verða í minnum höfð, löngu eftir að erfiðleikar þessa tímabils eru
gleymdir.
Fyrstu stjórn Læknafélags íslands skipuðu Guðmundur Hannes-
son, formaður, Guðmundur Magnússon, gjaldkeri, og Sæmundur Bjarn-
héðinsson, ritari. Um stofnun félagsins sagði Guðmundur Hannesson
m. a.: „Mitt í öllum harðindum, þrátt fyrir alla dýrtíð og styrjöld, byrja
nú íslenzkir læknar árið með þessari félagsstofnun, víllausir og alls
ósmeykir, til þess að búa betur í haginn fyrir komandi ár. Um það
skal engu spáð, hvernig þessu félagi voru muni farnast, hvert gagn
það getur unnið bæði læknastéttinni og landinu.“ Hér talaði bjartsýnn
framfaramaður alls ósmeykur við tímabundna erfiðleika, enda einn
af mestu framfaramönnum þessa tímabils.
Fyrsta læknafélag, sem stofnað var hér á landi, mun hafa verið
„Félag austfirzkra lækna“, sem stofnað var 16. júlí 1894. Það starf-
aði aðeins tvö ár. Fyrsta almenna læknafélagið hér á landi var stofnað
29. ágúst 1898, og nefndist það „Hið íslenzka læknafélag". Félag þetta
hélt aðeins einn fund, og lagðist starfsemi þess niður, þar sem ekki
reyndist unnt að ná læknum saman til fundarhalda. Þá stofnaði Guð-