Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 01.08.1971, Blaðsíða 43

Læknablaðið - 01.08.1971, Blaðsíða 43
LÆKNABLAÐIÐ 147 um og fá unga lækna til þess að hafa áhuga á þessum nauðsynja- störfum. Þá hefur Læknafélag íslands beitt sér fyrir því, að læknasam- tökin hafa samið og samþykkt sérstaka stefnuskrá fyrir faglega stjórnun og störf á sjúkrahúsum landsins. Samningar standa nú yfir milli Læknafélags Reykjavíkur og stjórnvalda um framkvæmd á nokkrum atriðum varðandi stefnuskrá þessa. Hér er um veigamiklar breytingar að ræða á faglegri stjórnun og starfsemi. Þær eru sniðnar til þess að henta í menntunar- og lýðræðisþjóðfélagi og ganga lengra í nýtízkuátt en gerist meðal nágrannaþjóðanna. í heilbrigðismálum höfum við tækifæri til að vinna brautryðjenda- starf á skipulagssviðinu og jafnvel verða öðrum til fyrirmyndar. Við eigum að læra af öðrum þjóðum, en gera það með vakandi hugsun og gagnrýni, en ekki líkja eftir þeim í blindni. Það er eitt megin- hlutverk læknasamtakanna að vinna að því á öllum sviðum þjóðmála, að læknar geti greitt sjúklingum sínum veg til þeirra beztu úrræða, sem fræðigrein þeirra hefur yfir að ráða á hverjum tíma. Útvarp, sjónvarp og dagblöð minntust afmælisins næsta dag. Frá- sagnir blaðanna voru misjafnlega ýtarlegar, en ekkert þeirra birti greinargerð félagsins í heild. 1. Fræðslufundur Afmælishátíðin sjálf hófst með fræðslufundi (symposium) um arthritis rheumatoides, sem formaður L.Í., Arinbjörn Kolbeinsson, setti hinn 3. október kl. 20.30. FUndur þessi hafði að öllu leyti verið undirbúinn af Giktsjúkdómafélagi íslenzkra lækna. Höfðu unnið að því með formanni þess, Jóni Þorsteinssyni, þeir Ólafur Ólafsson, Nikulás Sigfússon og auk þess sænskur læknir, Erik Allander, sem kom hingað til landsins á vegum Hjarta- og æðavemdarfélagsins til þess að grundvalla giktsjúkdómarannsóknir í tengslum við rannsóknir Hjartaverndar. Formaður gat þess í setningarræðu sinni, að vel hefði þótt við- eigandi, að félagið minntist afmælisins með þrennu mismunandi móti, og þá fyrst með fræðslufundi um læknisfræðilegt efni, þar sem fræðslustarf er einn af meginþáttum í starfsemi þess; annað, ráðstefnu um heilbrigðismál til þess að undirstrika afskipti félagsins af heil- brigðismálum sem einn veigamesta þátt í starfsemi þess, og loks með almennum veizlufagnaði, því að slíkt heyrir öllum stórum afmælum til. Þakkaði formaður Giktsjúkdómafélagi íslenzkra lækna fyrir að leggja fram þetta þýðingarmikla efni sem fyrsta þátt í afmælishátíð félagsins. Fundarstjóri var kjörinn Ólafur Ólafsson, en ritari Höskuldur Baldursson. Fundinn sóttu nær 90 læknar, og mun þetta einhver fjöl- sóttasti læknafundur, sem haldinn hefur verið, þar sem eingöngu hefur verið fjallað um fræðilegt efni. Skrifstofa félagsins hafði fjöl- ritað öll erindi, sem þarna voru flutt, og voru þau afhent fundarfólki í formi fjölritaðs bæklings strax í upphafi fundar. Dagskrá fundarins (fskj. 1). Erindi fundarins birtust í Læknablaðinu, 5. h. 1969.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.